Innlent

Benedikt nálgast land

Benedikt á leið yfir Ermarsund fyrr í dag.
Benedikt á leið yfir Ermarsund fyrr í dag.

Benedikt Hjartarson, sundgarpur sem syndir nú yfir Ermarsund, er búinn að synda 43 kílómetra og er bein lína í land sjö kílómetrar. Hann syndir nú á 3,8 kílómetra meðalhraða.

Gréta Ingþórsdóttir, sem er í fylgdarbát Benedikts, segir að Ermarsundið sé 32 kílómetrar í beinni loftlínu. Leiðin sé þó í það minnsta 40 kílómetrar, meðal annars vegna mikillar skipaumferðar.

Gréta segir að Benedikt sé kominn mjög nærri landi og að þau séu ,,farin að telja húsin." Ef allt gangi eftir eigi Benedikt að ná í land í Frakklandi síðar í kvöld.


Tengdar fréttir

Benedikt Hjartarson er lagður af stað í Ermarsund

Benedikt Hjartarson sundmaður er lagður af stað yfir Ermarsund. Hann tók fyrstu sundtökin nú um hálfátta og á framundan 12-15 tíma sund. Aðstæður eru fínar, veður ágætt en spáin fyrir seinni partinn er ekkert sérstök og spurning hvort Benedikt verður þá ekki kominn langleiðina í land á ný.

Benedikt hefur lagt 12 kílómetra að baki

Benedikt Hjartarsyni gengur vel á leið sinni yfir Ermarsund. Að sögn Grétu Ingþórsdóttur, upplýsingafulltrúa Benedikts, hefur hann lagt að baki tólf kílómetra og er hann búinn að synda í um þrjár klukkustundir og fjörutíu og fimm mínútur.

Benedikt Hjartarson kominn 17 kílómetra

Sundmaðurinn Benedikt Hjartarson sem nú er á sundi yfir Ermasund er kominn 17 kílómetra á fimm klukkustundum. Benedikt sem lagði af stað klukkan eldsnemma í morgun finnur fyrir smá krampa í læri en er að öðru leyti í góðu lagi.

Benedikt verður að bíta á jaxlinn - Stunginn af marglyttu í dag

"Hann verður bara að bíta á jaxlinn. Það er það eina í stöðunni," segir Benedikt Lafleur sjósundkappi aðsurður hvaða ráð hann eigi handa Bendedikti Hjartarsyni sem freistar þess í dag að verða fyrsti Íslendingurinn til þess að synda yfir Ermasundið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×