Ágúst biðst afsökunar: „Gerðist í hita leiksins“ 25. apríl 2008 15:57 Ágúst í átökum á Kirkjusandi í gær. MYND/Daníel
Ágúst Fylkisson, maðurinn sem réðst á lögregluþjón við Kirkjusand í gær, biðst afsökunar á hátterni sínu. Í samtali við Vísi segist hann sjá eftir atvikinu en bendir á að aðdragandinn að því að upp úr sauð hafi verið lengri en fram hafi komið í fréttum. Hann ætlar að senda frá sér tilkynningu um atvikið á morgun. „Ég biðst afsökunar á þessu en vill ekki ræða það nánar að svo stöddu," sagði Ágúst Fylkisson í samtali við Vísi. „Þetta gerðist í hita leiksins en aðdragandinn var lengri þótt það hafi ekki komið fram á myndunum, það var ýmislegt búið að ganga á," segir Ágúst en myndir af árásinni voru birtar í fréttum sjónvarps og á Vísi í gær. „Það kemur tilkynning frá mér um þetta mál á morgun og ég vil ekki ræða það nánar að svo stöddu," sagði Ágúst. Hann segist ekki hafa heyrt frá lögreglunni eftir að honum var sleppt úr haldi en heimildir Vísis herma að líklegast verði hann ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni og líkamsárás. Fyrir slík brot gæti hann átt yfir höfði sér allt að átta ára fangelsisvist, en í almennum hegningarlögum segir í 106 grein: „Hver, sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann, þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða út af því, og eins hver sá, sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks starfa eða neyða starfsmanninn til þess að framkvæma einhverja athöfn í embætti sínu eða sýslan, skal sæta fangelsi allt að 6 árum. Ef brot samkvæmt þessari málsgrein beinist að opinberum starfsmanni, sem að lögum hefur heimild til líkamlegrar valdbeitingar, má beita fangelsi allt að 8 árum."
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira