Evrópunefnd Björns sagði hugmyndir um upptöku evru án ESB aðildar óraunhæfar 14. júlí 2008 12:08
Evra verður ekki tekin upp hér án aðildar að Evrópusambandinu. Þetta sagði Björn Bjarnason á heimasíðu sinni í fyrra en hefur nú skipt um skoðun. Hugmyndir hans um upptöku evru í gegnum EES eru óraunhæfar að mati Evrópunefndarinnar. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra viðraði á vefsvæði sínu þá hugmynd að taka upp evru í gegnum EES samninginn. Segir hann að engin lagaleg rök séu fyrir því að það verði gert og að sú hugmynd feli í sér meiri pólitíska sátt en aðild að ESB. Þessi hugmynd hefur vakið mikla athygli, ekki síst í ljósi fyrri ummæla Björns um upptöku Evru. Þann 13. janúar í fyrra skrifaði Björn pistil á vefsvæði sitt undir heitinu Evran. Þar segir hann að evra verði ekki tekin upp hér án aðildar að Evrópusambandinu og að það sé með ólíkindum að stjórnmálamenn láti í veðri vaka að ekkert mál sé að bregðast við hagsveiflu með upptöku evru. Jafnframt segir Björn orðrétt: Stjórnmálamenn geta auðvitað gjaldfellt krónuna með tali af þessu tagi og valdið þannig efnahagslegum vanda. Hitt er þó líklegra, að þeir gjaldfelli svo sjálfir með ábyrgðarleysinu, að krónan standi sterkari eftir en þeir sjálfir. Tilvitnun lýkur. Í skýrslu Evrópunefndarinnar sem forsætisráðherra skipaði, og Björn sjálfur var í forsvari fyrir var fjallað stuttlega um upptöku evru án aðildar að Evrópusambandinu. Þar segir að raunhæfir kostir Íslands í peningamálum eru að flestra mati einungis tveir. Annars vegar núverandi fyrirkomulag og hins vegar upptaka evru samhliða aðild að ESB og myntbandalagi Evrópu. Einhliða upptaka evru eða með sérstöku samkomulagi við ESB eru óraunhæfir, að mati nefndarinnar.
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira