Sátt um stokk á Miklubraut-Kringlumýrarbraut 5. nóvember 2008 19:53 Gísli Marteinn Baldursson formaður samráðshópsins.
Niðurstaða samráðs um framkvæmdir við Miklubraut - Kringlumýrarbraut er að leggja áherslu á stokk á Miklubraut frá Snorrabraut/Rauðarárstíg austur fyrir gatnamót við Kringlumýrarbraut. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir ennfremur: „Niðurstaðan þýðir að áratuga deilum um gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar hafi lokið í sátt," segir Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi og formaður samráðshópsins sem hélt sinn lokafund síðdegis 5. nóvember. Lausnin gerir það mögulegt halda gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í þeirri hæð sem þau eru nú, í stað þess að hækka þau í tveggja metra hæð. Breytingum á Kringlumýrarbraut er frestað en hana mætti leggja undir gatnamótin í jarðgöng síðar. „Við höfum í haust unnið markvisst að því að finna lausn sem bæði meirihluti og minnihluti í borgarstjórn, en þó aðallega íbúarnir á svæðinu, gætu fellt sig við, því allir voru sammála um að núverandi ástand gangi ekki," segir Gísli Marteinn. Heildarkostnaður mun lækka um 6-6,5 milljarða kr. með frestun aðgerða á Kringlumýrarbraut. Áætlaður viðbótarkostnaður við lengingu stokks á Miklubraut er 1,5-2 milljarðar kr. Heildarkostnaður við stokkinn verður því 7,5-8 milljarðar kr. „Niðurstaðan er stokkur á Miklubraut sem fer undir Kringlumýrarbraut og undir gatnamótin við Lönguhlíð og kemur upp vestan Rauðarárstígs," segir Gísli Marteinn. „Þar með streymir umferðin sem ekki á erindi í Hlíðarnar undir yfirborðið og ofanjarðar verður hæg hverfisumferð þar sem sérstaklega verður hugað að gangandi og hjólandi umferð og öryggi barna og fullorðinna." Sátt er um þessa lausn milli flokka í borgarstjórn Reykjavíkur og í samráðshópnum voru einnig fulltrúar íbúa í Háaleitishverfi og Hlíðahverf. Íbúar Háaleitis leggja áherslu á að stokkurinn nái austur fyrir Grensásveg og lögðu bókun fram um það á fundinum nú síðdegis. Niðurstaða þessa samráðs verður nú kynnt fyrir Vegagerðarinni og lögð fyrir borgarráð.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Sjá meira