Innlent

Rekstur Mosfellsbæjar jákvæður um 543 milljónir

MYND/Vilhelm Gunnarsson

Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2007 var kynntur á 491. fundi bæjarstjórnar í dag og honum vísað til seinni umræðu sem er fyrirhuguð 4. júní. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Mosfellsbæ. Enn fremur segir þar:

„Rekstur sveitarfélagsins á árinu 2007 gekk mjög vel. Rekstrarniðurstaða A og B

hluta var jákvæð um 543 mkr. Veltufé frá rekstri var 600 mkr eða 13,8% af

rekstrartekjum og handbært fé frá rekstri var 416 mkr. Skuldir og skuldbindingar

A og B hluta lækkuðu um 348 mkr á árinu og námu 3.730 mkr í árslok.

Eiginfjárhlutfall A og B hluta var 0,42 og hefur hækkað úr 0,25 frá árinu 2002 en

sé einungis litið til A hluta var eiginfjárhlutfall 0,42 og hefur hækkað úr 0,15 frá

árinu 2002.

Mikil uppbygging átti sér stað í sveitarfélaginu á árinu og námu fjárfestingar 618

mkr en þar af voru 401 mkr vegna fræðslumála og 66 mkr vegna íþróttamála. Á

árinu var tekin í notkun íþróttamiðstöð að Lækjarhlíð sem er í eigu Fasteignafélagsins

Lækjarhlíðar ehf þar sem Mosfellsbær er 50% eigandi. Mosfellsbær hefur

gert sérleyfissamning til 30 ára sem tryggir íbúum aðgang að miðstöðinni.

Sköttum og þjónustugjöldum er stillt í hóf og er Mosfellsbær eitt fárra sveitarfélaga

sem ekki fullnýtir heimild til álagningar útsvars.

Fasteignaskattar á

íbúðarhúsnæði voru lækkaðir í 0,225% auk þess sem 5 ára börn fá áfram

endurgjaldslausa 8 tíma leikskólavist.

Mosfellsbær hefur markað sér sérstöðu á meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

hvað varðar áherslu á fjölskylduvænt samfélag með áherslu á íþróttir og

útivist. Framtíðarhorfur Mosfellsbæjar eru góðar og hefur sveitarfélagið í

samvinnu við landeigendur stuðlað að nægu framboði lóða og uppbyggingu

skólamannvirkja. Íbúum fjölgaði um 646 eða um 8,6% á árinu og voru 8.147 í

árslok. Gert er ráð fyrir áframhaldandi íbúaaukningu á komandi árum sbr. þriggja

ára áætlun."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×