Höggið þungt fyrir elstu sjóðfélagana 15. desember 2008 07:00
Íslenski lífeyrissjóðurinn, sem Landsbankinn rekur, kappkostaði sölu á innlendum og erlendum hlutabréfum til að lágmarka áhættu sjóðsfélaga mánuðina fyrir bankahrunið. Fénu var að stórum hluta varið til kaupa á skuldabréfum viðskiptabankanna sem urðu nær verðlaus við setningu neyðarlaganna í október. Þetta varð reiðarslag fyrir sjóðsfélaga; ekki síst fyrir eldri borgara sem höfðu valið ávöxtunarleið sem nær alfarið samanstóð af skuldabréfum. Niðurstaða lífeyrissjóðs í vörslu Kaupþings var mun betri þar sem áhersla var lögð á kaup á ríkistryggðum skuldabréfum. Í bréfi til sjóðfélaga harma forsvarsmenn Íslenska lífeyrissjóðsins niðurstöðuna og boða óhjákvæmilega skerðingu lífeyrisgreiðslna á næsta ári. Þar segir að stórum hluta þeirra fjármuna sem losnuðu við sölu hlutabréfa hafi verið varið til kaupa á skuldabréfum viðskiptabankanna „enda lítið framboð á ríkistryggðum skuldabréfum á sama tíma". Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, sem rekinn er af eignastýringu Kaupþings, segir að öruggasta ávöxtunarleiðin hafi skilað 23,1 prósents nafnávöxtun. Ástæðan er að Kaupþing lagði meiri áherslu á kaup á ríkisskuldabréfum en skuldabréfum fjármálastofnana og fyrirtækja. Nafnávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins var neikvæð um tuttugu prósent á fyrstu ellefu mánuðum ársins óháð ávöxtunarleið. Leiðin sem ber mesta áhættu skilaði 20,4 prósenta neikvæðri ávöxtun samanborið við 20,1 prósent þar sem áhættan átti að vera lítil sem engin. Ef litið er til tímans frá bankahruninu er rýrnunin enn meiri eða rúm þrjátíu prósent eins og gögn eins sjóðfélaga Íslenska lífeyrissjóðsins sýna glöggt. Hann er 63 ára karlmaður sem hefur greitt í séreignarsparnað frá árinu 1999. Hann átti tæplega sjö og hálfa milljón í október en eign hans hafði rýrnað um tvær og hálfa milljón króna þegar honum barst bréf forsvarsmannanna. Sparnaðarleiðin sem hann valdi er hugsuð fyrir sjóðfélaga sem ekki mega við því að taka mikla áhættu, aðallega fólk 65 ára og eldra. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira