Rúmenarnir jarðsungnir í dag 25. ágúst 2008 12:03
Mennirnir tveir sem létust í aðveituröri í Hellisheiðarvirkjun í síðustu viku verða jarðsungnir í heimalandi sínu, Rúmeníu, í dag. Mikið kapp var lagt á að koma líkum þeirra heim til greftrunar innan þriggja daga vegna trúar þeirra en það tókst ekki. Mennirnir tveir tilheyrðu Rétttrúnaðarkirkjunni í Rúmeníu og samkvæmt henni og rúmenskri hefð skal jarðsetja fólk innan þriggja sólahringa frá andláti. Líkin voru ekki flutt úr landi fyrr en á laugardaginn en þá voru tæpir þrír sólahringar frá því mennirnir létust. Gunnar Pétursson, vinnuveitandi mannanna hjá Vélsmiðjunni Altaki, segir allt hafa verið reynt til að koma líkum mannanna heim til Rúmeníu í tæka tíð en það hafi því miður ekki tekist. Líkin fengust ekki afhent fyrr en eftir krufningu á föstudaginn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var allt gert til að hraða því ferli. Mennirnir tveir störfuðu fyrir Altak við Hellisheiðarvirkjun en vélsmiðjan sér um járnsmíði þar. Síðdegis á miðvikudaginn var þeim falið að gera gat á aðveiturör á svæðinu en um leið sagt að fara ekki inn í það. Verkstjóri kom síðar að mönnunum þar sem þeir lágu inni í rörinu. Lífgunartilraunir báru ekki árangur. Mennirnir köfnuðu en ekki liggur fyrir hvort það var vegna súrefnisskorts eða eitrunar. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi, segir endanlega niðurstöðu krufningar ekki liggja fyrir fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Sjá meira