Færri aka í gegnum Hvalfjarðargöngin 19. júlí 2008 18:49
Færri aka í gegnum Hvalfjarðargöngin en á sama tíma í fyrra. Ástæðuna má rekja til hækkandi bensínverðs og samdráttar í efnahagslífinu. Umferð í gegnum Hvalfjarðargöngin hefur aukist ár frá ári, allt frá því þau voru opnuð þann 11. júlí 1998. Kemur þar til aukin bifreiðaeign landsmanna með tilheyrandi ferðalögum auk fjölgun íbúa á suðvesturhorninu, svo eitthvað sé nefnt. Þannig fóru 984 þúsund ökutæki um göngin á fyrsta rekstrarárinu en um tvær milljónir rekstrarárið 2006 til 2007. En nú horfir svo við að umferð í gegnum göngin er minni en á sama tíma í fyrra. Sé miðað við tímabilið 1. maí til 17. júlí fóru rúmlega 537 þúsund bílar í gegnum göngin, en á sama tíma í ár voru bílarnir um 508 þúsund. Þeim hefur semsagt fækkað um nærri 30 þúsund. Júlímánuður er tími ferðalaga og því er forvitnilegt að bera saman umferð júlímánaðar síðustu ára. Allt frá árinu 2004 hefur umferð aukist á milli ára, mest um 16 prósent árið 2004, minnst árið 2006 og í fyrra jókst umferðin um 9 prósent frá árinu þar á undan. En í ár fækkar ferðum ökutækja í gegnum göngin um ellefu prósent. Nærtækasta skýringin á þessari fækkun er mikil hækkun bensínverðs á þessu ári samhliða hröðum samdrætti í efnahagslífinu. Þetta rímar við fullyrðingar olíufélaganna sem segjast hafa orðið vör við merkjanlegan samdrátt í eldsneytissölu undanfarin misseri.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira