Obama byrjaður að velja í stjórn 6. nóvember 2008 12:53 MYND/AP
Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, er þegar byrjaður að velja í stjórn og starfslið sitt. Hann hefur boðið Rahm Emanuel, fulltrúadeildarþingmanni og fyrrverandi ráðgjafa Bills Clintons, að verða starfsmannastjóri sinn. Búist er við að Obama vilji skipa nýjan fjármálaráðherra hið fyrsta en að hann biðji Robert Gates að gegna áfram embætti varnarmálaráðherra. Emanuel, sem er fjörutíu og átta ára, er þungavigtarmaður í Demókrataflokknum þótt hann hafi aðeins setið í fulltrúadeildinni fyrir Illinois-ríki síðan 2002. Hann hélt um fjáröflun fyrir forsetaframboð Clintons 1992 og varð síðan einn helsti ráðgjafi hans í efnahagsmálum á árunum 1993 til 1998. Emanuel átti stóran þátt í afla nægilegs stuðnings úr röðum demókrata við sjö hundruð milljarða dala bankabjörguninni fyrir skömmu. Obama hefur nú boðið Emanuel að taka að sér stöðu starfsmannastjóra í Hvíta húsinu sem er ein valdamesta staða í bandarískum stjórnmálum. Obama er einnig farinn að huga að ráðherravali í ríkisstjórn sína. Talið er nær víst að hann vildi Hank Paulson, fjármálaráðherra út og þegar skipa nýjan. Þar koma til greina þeir Larry Summers, fyrrverandi fjármálaráðherra í ríkisstjórn Clintons, og Timothy Geithner, bankastjóri seðlabanka New York. Talið er líklegt að Obama biðji Robert Gates að vera áfram varnarmálaráðherra en George Bush, fráfarandi Bandaríkjaforseti skipaði hann í embættið í desember 2006 þegar Donald Rumsfeld hrökklaðist úr því. Gates nýtur virðingar hjá bæði repúblíkönum og demókrötum og hefur Obama sagt að hann sjái ekkert því til fyrirstöðu að hæfir repúblíkanar taki sæti í ríkisstjórn hans.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Sjá meira