Engin áform um að flýta kosningum að svo stöddu 10. nóvember 2008 15:37
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir engin áform um að flýta kosningum að svo stöddu. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri - grænna. Steingrímur spurði ráðherra út það hvernig til stæði að standa að upplýsingagjöf til almennings og sagði reiðina mikla í samfélaginu og með réttu. Þá sagði hann að almenningur yrði að geta treyst því að mál yrðu rannsökuð og spurði hvort ekki væri hægt að gefa til kynna að um leið og aðstæður leyfðu yrði boðað til kosninga. Enn fremur spurði hann hvernig ríkisstjórnin ætlaði að verja heimilin og atvinnulífið næstu daga og næstu vikur. Þessi mál þoldu enga bið og hver einasti dagur væri ákaflega dýrkeyptur. Geir H. Haarde svaraði því til að engin áform væru um að flýta kosningum að svo stöddu. Þá vísaði hann til þess varðandi spurningu um rannsókn á bankahruninu að formenn flokkanna ynnu að því máli. Fundað yrði síðar í dag og þar leitað leiða til að flytja sameiginlegt þingmál um rannsókn. Þá sagði hann að honum þætti miður ef mönnum þætti sem upplýsingagjöf væri ekki með eðlilegum hætti en benti á að opnað hefði verið sérstakt símaver og ráðuneyti myndu einnig veita upplýsingar og liðsinni. Þá ynnu ýmsar stofnanir eins og Íbúðalánasjóður og Vinnumálastofnun hörðum höndum að því að leysa vanda einstaklinga. Steingrímur sagði þá að það óskynsamlegt hjá forsætisráðherra að tala svona um kosningar. Það væri veruleikafirring og hlutirnir muni aldrei ganga án kosninga innan skamms. Varðandi rannsókn sagði hann tímann nauman og vildi hann að í þessari viku liti frumvarp þar um dagsins ljós.
Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira