Umdeild Kaupþingsákvörðun verði felld niður 6. nóvember 2008 18:00
Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings sendi frá sér tilkynningu nú fyrir stundu. Þar kemur fram að stjórnarformanni og varaformanni Nýja Kaupþings hafi verið afhent tillaga fyrir hönd starfsmanna bankans. Þar sem óskað er eftir því að vegna yfirtöku Nýja Kaupþings á lánum til starfsmanna vegna hlutafjárkaupa í gamla Kaupþingi samþykki stjórn bankans að leita samninga við starfsmenn um greiðslu á lánunum. Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér að neðan: Fram kom í yfirlýsingu stjórnar Nýs Kaupþings banka hf. þann 4. nóvember síðastliðinn að sá banki hefði tekið yfir lánveitingar til starfsmanna gamla Kaupþings vegna kaupa þeirra á hlutabréfum í bankanum. Jafnframt kom fram að stjórn bankans hefði ekki tekið ákvörðun um annað en að haga i bæri innheimtu þessara lánveitinga með sambærilegum hætti og gagnvart öðrum viðskiptavinum bankans. Þann 22. október síðastliðinn var stjórnarformanni og varaformanni Nýja Kaupþings banka afhent tillaga fyrir hönd starfsmanna bankans. Þar er óskað eftir því að vegna yfirtöku Nýja Kaupþings á lánum til starfsmanna vegna hlutafjárkaupa í gamla Kaupþingi samþykki stjórn bankans að leita samninga við starfsmenn um greiðslu á lánunum. Með starfsmönnum er bæði átt við núverandi starfsmenn Nýja Kaupþings og fyrrverandi starfsmenn gamla Kaupþings. Farið er fram á af hálfu starfsmanna að lánin verði innheimt í samræmi við almennar reglur bankans. Í tillögunni fellst jafnframt að ákvörðun stjórnar gamla Kaupþings frá 25. september yrði felld niður. Starfsmenn töldu nauðsynlegt að leggja fram þessa tillögu vegna breytinga sem orðið höfðu á forsendum ákvörðunar stjórnar gamla Kaupþings frá 25. september eftir að ríkisvaldið yfirtók starfsemi þess banka. Fjármálaráðuneytinu var jafnframt kynnt efni þessarar tillögu á þessum tíma auk þess sem óformlega var rætt við Fjármálaeftirlitið. Í tillögunni er gerð grein fyrir því að hún sé lögð fram til að eyða allri óvissu um þetta mál, ekki einungis vegna starfsmanna heldur einnig vegna bankans sjálfs. Jafnframt að hún sé sett fram til að fá fram niðurstöðu sem sé líkleg til að skapa frið um þetta mál bæði meðal starfsmanna, viðskiptavina og samfélagsins alls.
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira