Ekki hefur verið rætt um launalækkun æðstu embættismanna 4. nóvember 2008 10:20
Ekki hefur verið rætt um það hjá kjararáði hvort laun æðstu embættismanna landsins lækki í framhaldi af launalækkunum á almennum vinnumarkaði. Þetta segir Guðrún Zoëga, formaður kjararáðs. Verkefni kjararáðs er að ákveða laun og starfskjör þjóðkjörinna manna, ráðherra og dómara og annarra ríkisstarfsmanna þar sem ekki er hægt að ákvarða laun með kjarasamningum vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu. Ráðið hefur oft fylgt þeirri meginstefnu í kjaramálum sem verið hefur í kjarasamningum á almennum og opinberum markaði.Fram hefur komið að fjölmörg fyrirtæki hafi gripið til þess ráðs að lækka laun starfsmanna sinna um tíu prósent eða meira til þess að bregðast við þeim efnahagsþrengingum sem landið gengur í gegnum. Guðrún Zoëga segir að ráðið hafi ekki rætt hvort sama eigi að gilda um æðstu embættismenn enda séu þessar ákvarðanir fyrirtækja nýtilkomnar.Kjararáð tók síðast ákvörðun um hækkun launa hjá æðstu embættismönnum í sumar en samkvæmt lögum um ráðið á það að meta eigi sjaldnar en árlega hvort tilefni sé til breytinga. Aðspurð segist Guðrún ekkert geta sagt til um það hvenær kjararáð taki næst ákvörðun um laun æðstu embættismanna en segir að ef breytingar verði í þjóðfélaginu sem mið skuli taka af þá verði það skoðað.
Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent „Við erum bara að mótmæla“ Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Erlent „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Spáð í spilin fyrir komandi kosningar og rætt við vindmylluflutningamenn Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Bein útsending: Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Sjá meira