Innlent

Starfsmenn OR átelja stjórnina

Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur samþykktu í dag harðorða ályktun þar sem vinnubrögð stjórnar Orkuveitunnar eru gagnrýnd.

Ályktunin er birt í heild sinni hér fyrir neðan.

Almennur fundur Starfsmanna Orkuveitu Reykjavíkur lýsir yfir undrun og

vonbrigðum með þá ákvörðun stjórnar fyrirtækisins að víkja forstjóra þess úr starfi.

Jafnframt átelur fundurinn stjórn fyrirtækisins fyrir algjöran skort á

upplýsingum um gang mála og lýsir eftir skýrri stefnu í málefnum þess.

Guðmundur hefur staðið í fararbroddi í mikilli uppbyggingu undanfarinna ára og lýsir fundurinn yfir fullum stuðningi við hann.

Fundurinn hvetur stjórnarmenn til þess að bera hag fyrirtækisins fyrir brjósti og nýta tækifæri til sóknar, bæði innanlands og utan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×