Tilbúinn að ræða flutning lögreglu á Höfn yfir í Suðurkjördæmi 15. apríl 2008 15:26 MYND/Pjetur
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er tilbúinn að ræða þá hugmynd að lögreglan á Höfn í Hornafirði verði fremur hluti af lögregluliði Suðurlands en Austurlands ef það er vilji heimamanna og lögreglu að tengjast lögreglustjóra innan sama kjördæmis. Þetta kemur fram í svari hans við fyrirspurn Bjarna Harðarsonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um löggæslu á Austurlandi. Lögreglan á Höfn heyrir nú undir lögregluna á Eskifirði og spurði Bjarni hvort ráðherra teldi hvort markmið um sparnað og hagræðingu hefðu náðst með sameiningu lögregluembætta þvert yfir kjördæmamörk á Austurlandi. Ráðherra svaraði því til að sameining lögregluembætta í fyrra hafi ekki lotið að sparnaði eða hagræðingu. Hvorki hafi verið gert ráð fyrir hækkun né lækkun útgjalda vegna breytingarinnar. Bjarni spurði einnig hvort ráðherra teldi stöðu löggæslumála í sveitarfélaginu Hornafirði viðunandi eftir breytingarnar. Fram kom í svari Björns Bjarnasonar að með stækkun umdæma hafi liðsheild lögreglu orðið stærri og þar með styrkari. Fjarlægð frá lögreglustjóra réði ekki styrk lögregluliðs heldur skipulag þess, umgjörð og mannafli. Það ætti við um löggæslu í Sveitarfélaginu Hornafirði og væri lögregluliðið þar vel í stakk búið til að takast á við verkefni sín. „Að mati ráðherra er staða lögreglumála í sveitarfélaginu Hornafirði viðunandi, þótt alltaf megi gera betur. Til dæmis hefur það verið orðað við ráðherra að eðlilegra sé að lögregla í sveitarfélaginu sé hluti af liði á Suðurlandi en Austurlandi, án þess að í því felist nokkur gagnrýni á lögreglustjórnina á Eskifirði, sem er til fyrirmyndar. Sé það vilji heimamanna og lögreglu að tengjast lögreglustjóra innan sama kjördæmis er ráðherra tilbúinn að ræða þá hugmynd. Er eðlilegt að gera það á grundvelli úttektarskýrslu um reynsluna af nýskipan lögreglumála, sem birt verður á næstunni," segir einnig í svari ráðherra.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira