Hundrað milljarða viðsnúningur á mili ára 1. október 2008 16:00 Árni Mathiesen kynnti fjárlagafrumvarpið í Hafnarfirðinum í dag.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2009 sem lagt hefur verið fyrir Alþingi mun verða hallarekstur á ríkissjóði sem nemur 56,9 milljörðum króna á næsta ári. Þetta er viðsnúningur frá fyrra ári en þá var gert ráð fyrir tæpum 40 milljörðum í tekjuafgang af rekstri ríkissjóðs. Ekki verður hafist handa við byggingu hátæknisjúkrahúss né lagningu Sundabrautar. Í tilkynningu frá Fjármálaráðuneytinu, sem send var út um leið og Árni Mathiesen fjármálaráðherra kynnti frumvarpið, segir að sterk staða ríkissjóðs vegna góðrar afkomu undanfarinna missera geri ríkinu kleift að mæta þeim samdrætti sem reiknað er með að verði í tekjum ríkissjóðs á næstu árum. „Má ætla að innistæða ríkisins í Seðlabankanum muni nema rúmum 170 milljónum króna í lok árs 2008," segir í tilkynningunni um leið og bent er á að til samanburðar haf innistæða ríkisins í bankanum verið 17 milljarðar árið 2004. Í mati fjármálaráðuneytisins á horfum í efnahags- og ríkisfjármálum næstu fjögur árin er því spáð að landsframleiðslan muni dragast saman um 1,6 prósent á næsta ári en að „hagvöxtur verði hóflegur og vaxandi" árin 2010 til 2012. Þá er því spáð að verðlag hækki um tæp sex prósent á næsta ári auk þess sem kaupmátturinn dragist saman um 1,4 prósent og atvinnuleysi verði 2,7 prósent. Ný þjóðhagsspá ráðuneytisins gerir þó ráð fyrir því að að verðbólga muni hjaðna hratt á næstu árum og verða rúmlega tvö og hálft prósent á seinni hluta þessa fjögurra ára tímabils. Auk þess mun kaupmáttur ráðstöfunartekna glæðast frá árinu 2010 auk þess sem „hagkerfið komist í jafnvægi" eins og það er orðað. Í tilkynningu ráðuneytisins er einnig bent á að neikvæð þróun þáttatekna skyggi á jákvæðan viðsnúning á vöru- og þjónustujöfnuði sem geri það að verkum að viðskiptahallinn breytist lítið á þessu ári miðað við árið á undan. Áætlað er að viðskiptahallinn á þessu ári verði 16,8 prósent en að hratt muni draga úr honum á næsta ári þannig að áætlað sé að hallinn nemi 8,2 prósentum og að sú þróun muni halda áfram næstu árin. Í tilkynningu ráðuneytisins er vikið að lægðinni í efnahagslífinu sem er sögð leiða óhjákvæmilega til þess að tekjur ríkissjóðs minnka auk þess sem útgjöld aukast. „Áætlað er að tekjur ríkissjóðs árið 2009 verði 450,5 milljarðar króna sem er 13 milljörðum minna en í endurskoðaðri áætlun fyrir árið 2008." Skýringar á því eru sagðar vera lakari þjóðhagshorfur með minnkandi sköttum á tekjur og hagnað. „Þannig mun persónuafsláttur hækka um 24 þúsund krónur frá næstu áramótum, en hann er jafnframt verðtryggður sem leiðir til þess að tekjuskattur einstaklinga skilar talsvert minna í ríkisjóð en ella." Heildargjöld ríkisins munu hins vegar aukast samkvæmt frumvarpinu, um 3,9 prósent að raungildi. Sagt er að mest muni um hækkun rekstrargjalda á sviði heilsugæslu, öldrunarþjónustu og í málefnum fatlaðra, hækkun á framlögum til menntamála og löggæslu- og öryggismála. „Verulega munar líka um aukin útgjöld í kjölfar kjarasamninga við stéttarfélög ríkisstarfsmanna, hækkun verðlags og verðfalls krónunnar. Að sögn ráðuneytisins hefur verið gripið til ýmissa aðgerða til þess að lækka útgjöldin og nema þær aðgerðir 10 milljörðum króna. Á kynningarfundi í dag kom fram hjá Árna Mathiesen fjármálaráðherra að á meðal þeirra framkvæmda sem ekki koma til framkvæmda á næsta ári sé hátæknisjúkrahús við Hringbraut og Sundabraut.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Fleiri fréttir Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira