Gifti, skírði og jarðaði í óþökk kirkjunnar Andri Ólafsson skrifar 12. ágúst 2008 15:10 Gunnar Björnsson
Gunnar Björnsson, sóknarprestur á Selfossi, sem settur hefur verið í leyfi vegna ásakana um kynferðisbrot, hefur verið minntur á að honum er óheimilt að framkvæma kirkjulegar athafnir í Selfosskirkju á meðan hann er í leyfi. Gunnar fékk þessa áminningu eftir að í ljós kom að hann hafi gift, skírt og grafið fólk eftir að hann var settur í leyfi vegna þeirra alvarlegu ásakana sem á hann eru bornar. Biskupsstofa hafði farið fram á það við Gunnar þegar hann var settur í leyfi að hann framkvæmdi ekki athafnir. Hann varð hins vegar ekki við því og framkvæmdi fyrrnefndar athafnir í óleyfi. Eftir að Guðbjörg Jóhannesdóttir var settur sóknarprestur í Selfosskirkju, í fjarveru Gunnars, fékk hún athugasemdir við að Gunnar væri að framkvæma athafnir í kirkjunni. Athugasemdirnar voru á þá leið að kirkjan væri að gefa þau skilaboð að hún liti ásakanirnar á hendur Gunnari ekki nógu alvarlegum augum. "En sú er alls ekki raunin. Við tökum þessar ásakanir mög alvarlega," segir Guðbjörg. Hún bætir því hins vegar við að Gunnar sé saklaus uns sekt hans er sönnuð. Hann hafi verið beðinn ýmist um að gifta, skíra eða jarða safnaðarbörn sem hann hafi lengið þjónað og hann hafi orðið við því. "Ég ákvað hins vegar eftir að hafa rætt við vígslubiskupinn í Skáholti, að senda Gunnari bréf þar sem það er áréttað að honum er ekki heimilt að framkvæma athafnir á meðan hann er í leyfi." Gunnar Björnsson hefur ekki svarað bréfinu né gert við það athugasemdir og lítur Guðbjörg svo á að málinu sé lokið. Fimm stúlkur hafa kært séra Gunnar Björnsson fyrir kynferðislega áreitni og blygðunarsemisbrot. Stúlkurnar voru sóknarbörn hans og sumar þeirra virkar í starfi kirkjunnar. Þær voru á unglingsaldri þegar meint brot voru framin. Gunnar Björnsson er erlendis. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira