Innlent

Flugslysaæfing í Vestmannaeyjum

Heilbrigðisstarfsfólk í Vestmannaeyjum undirbýr sig undir æfinguna.
Heilbrigðisstarfsfólk í Vestmannaeyjum undirbýr sig undir æfinguna.

Flugslysaæfing fer fram á Vestmannaeyjaflugvelli dagana 24. - 27. apríl næstkomandi. „Æfð verða viðbrögð við slysi þegar 40 farþega flugvél hlekkist á við lendingu á Vestmannaeyjaflugvelli með þeim afleiðingum að eldar kvikna og fjöldi manns þarfnast tafarlausar aðhlynningar," segir í tlkynningu frá Flugstoðum.

„Ráðgjafar eða starfsmenn á vettvangi verða um þrjátíu manns en það eru aðilar sem skipa ráðgjafahóp Flugstoða vegna flugslysaviðbúnaðar. Þrátt fyrir að þetta sé flugslysaæfing nýtist hún einnig ef um er að ræða annars konar hópslys og því má segja að flugslysaæfingar Flugstoða sé einn höfuðvettvangur í undirbúningi og skipulagi á viðbrögðum vegna hópslysa á Íslandi. Heildarfjöldi þátttakenda verður á þriðja hundrað manns."

Þá segir að æffingin, sem er sú tuttugasta og önnur í röðinni, hefjist með setningu fimmtudaginn 24. apríl en slysið verður sviðsett laugardaginn 26. september kl. 13:00. „Heildarviðbragðskerfi Vestmannaeyja verður því æft á þessari umfangsmiklu æfingu. Unnið verður eftir svokölluðu SÁBF (Stjórnun - Áætlanir - Bjargir - Framkvæmd) skipulagi sem er samhæft skipulag neyðaraðgerða sem tekið var upp á Íslandi árið 2000. Kerfið vinnur að því að allar þær einingar eða starfshópar sem koma að slysi eins og sett verður á svið, vinni saman eftir samhæfðum aðferðum."

Í tilkynningunni kemur einnig fram að mörg þúsund mannstundir liggi að baki undirbúningi og framkvæmd æfingar sem þessarar en að henni koma á þriðja hundrað einstaklingar að þessu sinni. „Mikil þekking og reynsla verður samankomin í Vestmannaeyjum þar sem hugað verður að öllum þeim atriðum sem upp geta komið, ef flugslys verður á svæðinu. A meðal þeirra eru: Flugstoðir, Landspítali Fossvogi, Landhelgisgæslan, Almannavarnir, Björgunarsveitir, Neyðarlínan, Rannsóknarnefnd flugslysa, Rauði Krossinn, Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Þjóðkirkjan auk Slökkviliðs Vestmannaeyja og Höfuðborgarsvæðisins."

„Meginþungi æfingarinnar liggur á herðum heimamanna enda er markmið æfingarinnar að samhæfa viðbrögð allra hluteigandi aðila í Vestmannaeyjum. Þessir aðilar eru Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja, Flugstoðastarfsfólk á Vestmannaeyjaflugvelli, Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, Lögreglan í Vestmannaeyjum, Rauðakrossdeild Vestmannaeyja, Landsbjörg í Vestmannaeyjum, Brunavarnir Vestmannaeyja, starfsmenn flugrekanda á Vestmannaeyjaflugvelli, svæðisstjórn Björgunarsveita og fleiri."

Upplýsingar um æfinguna er að finna á heimasíðu Flugstoða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×