Bandaríkjaþing nær samkomulagi um neyðarsjóð 28. september 2008 12:39
Demókratar og repúblíkanar á Bandaríkjaþingi hafa náð samkomulagi í meginatriðum um stofnun neyðarsjóðs fyrir bágstödd fjármálafyrirtæki í Bandaríkjunum. Eftir er að hnýta lausa enda og stefnt að því að greiða atkvæði um frumvarpið í fulltrúadeild þingsins í dag. Demókratinn Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sagði að málinu hefði miðað vel áfram og samningafundir staðið langt fram á nótt. Enn ætti þó eftir að ganga frá nokkrum lausum endum. Það yrði gert í dag og vonandi yrði hægt að leggja frumvarpið fram í fulltrúadeildinni síðar í dag og þá hægt að greiða atkvæði um það. Byggt er á frumvarpi Hanks Paulsons fjármálaráðherra um stofnun sjö hundruð milljarða dala neyðarsjóðs. Fé úr honum á að nota til að kaupa undirmálslán af illa stæðum bönkum og fjármálafyrirtækjum. Repúblikanar sem og demókratar á þingi hafa gert ýmsar athugasemdir við frumvarpið, meðal annars að ekki hafi verið gert ráð fyrir opinberu eftirliti með sjóðnum. Bush Bandaríkjaforseti hefur hvatt þing til að samþykkja það og fjármálasérfræðingar lagt áherslu á að málið verði komið í höfn áður en opnað verði fyrir viðskipti á mörkuðum vestanhafs á morgun.En á meðan tekist er á um þetta fór annað frumvarp í gegnum þingið í gær sem féll í skuggann af neyðarsjóðsfrumvarpinu. Öldungadeildin samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða frumvarp sem felur í sér útgjöld fyrir bandaríska ríkið upp á jafnvirði sextíu þúsund milljarða króna - til viðbótar þeim rúmlega sextíu og sex þúsund milljörðum króna sem eiga að fara í neyðarsjóðinn. Tryggir það rekstur bandaríska ríkisins eftir að núgildandi fjárlagaári líkur sem er á þriðjudaginn. Það heimilar olíuborun undan Norður-Atlantshafs- og Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna sem hefur verið umdeilt. Frumvarpið hefur verið þrætuepli milli demókrata annars vegar, sem hafa meirihluta á þingi, og repúblikana og stjórnar Bush Bandaríkjaforseta hins vegar.Samið var um útgjöld til ýmissa gæluverkefna þingmanna úr báðum flokkum svo koma mætti frumvarpinu í gegn en háværar kröfur hafa verið um olíuborun á þessum svæðum vegna hækkana á eldsneytisverði í Bandaríkjunum.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Sjá meira