Innlent

Konur í meirihluta í fagráðum borgarinnar

Konur eru sex fleiri en karlar sem aðalmenn í tíu helstu fagráðum borgarinnar en kosið var til þeirra við meirihlutaskipti í dag.

Sjö manns sitja í hverju ráðanna, fjórir frá meirihluta og þrír frá minnihluta. Af 40 fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í ráðunum er 21 karl og 19 konur, en konur og karlar sitja fyrir flokkana í öllum ráðum nema borgarráði. Þar sitja einungis karlar fyrir meirihlutann.Af þrjátíu fulltrúum minnihlutans eru 19 þeirra konur og ellefu karlar. Enginn karl situr í menntaráði fyrir hönd minnihlutans.

Bent er á í tilkynningu frá borgarstjórn að þegar skoðaðir séu aðalmenn og fyrstu varamenn í fagráðunum tíu komi í ljós að kynjahlutföllin séu jöfn, það er 40 karlar á móti 40 konur. Sex formenn fagráðanna eru karlar og fjórir konur og þá er æðsti maður borgarinnar kona.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×