Nýr meirihluti skopmynd af ríkisstjórn Davíðs og Halldórs 21. ágúst 2008 10:51 MYND/GVA
Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri - grænna í borgarstjórn, sagði nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í borginni skopmynd af ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar og að hér væri á ferðinni meirihluti sem myndaður hefði verið eftir höfði Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins og ritstjóra Fréttablaðsins. Svandís sagði allt ferlið í borgarstjórn síðustu misseri á ábyrgð Sjálfstæðisflokknum. Sagði hún eins manns framboð í sérstakri hættu þegar valdagræðgi sjálfstæðismanna væri annars vegar. Litlu flokkarnir fengju ekki völd í gegnum fylgi heldur fylgilag. Þetta væri í þriðja sinn sem sjálfstæðismenn mynduðu meirihluta með þessum hætti á tveimur árum. Sjálfstæðismenn byggðu samstarf við Ólaf á blekkingum Sagði hún Sjálfstæðisflokkinn hafa beðið eftir því í tólf ár að komast til valda í borg Davíðs Oddssonar en í ljós hefði komið að árin tólf hefðu ekki dugað flokknum stóra því hann hefði ekki kunnað til verka. Við ágjöf í REI-málinu hefði samstaðan brostið í þeirra röðum. Þá sagði Svandís að sjálfstæðismenn hefðu byggt samstarf við Ólaf F. Magnússon á blekkingum og þá hefði óvinsælasti meirihluti allra tíma var kynntur til leiks. Nú væri enn einn meirihlutinn kynntur til sögunnar og Framsóknarflokkurinn hefði ekkert lært af eigin sögu eða sögu Ólafs. Óskar í sviðnum lendum eigin akurs Svandís sagði Óskar Bergsson, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, í lendum eigin akurs og flokkur sjálfstæðismanna væri rjúkandi rúst. Gísli Marteinn Baldursson væri á braut og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson væri með óuppgerð mál. Spurði Svandís hver staða Kjartans Magnússonar væri nú þar sem hann hefði átt samtöl við Ólaf F. Magnússon vikum og mánuðum saman um samstarf áður en af því varð. Spurði hún hvort Júlíus Vífill Ingvarsson stefndi á oddvitasætið í næstu kosningum og hvort Hanna Birna Kristjánsdóttir vildi uppstillingu í stað prófkjörs fyrir næstu kosningar. Sagði Svandís að gengið yrði eftir svörum við þessum spurningum. Enn fremur sagði Svandís að kjósendur hefðu þegar hafnað þessum meirihluta og þeir myndu muna þetta klúður sem væri í boði sjálfstæðisflokksins. Stóriðjumeirihluti kominn til valda Þá sagði hún gamla stóiriðjumeirihlutann kominn til valda í borgarstjórn og að meirihlutinn væri myndaður eftir höfði Þorsteins Pálsonar, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins og ritstjóra Fréttablaðsins. Þetta væri ekki bara afturhvarf til fyrsta meirihluta kjörtímabilsins heldur væri meirihlutinn skopmynd af ríkisstjórn af ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar sem í tófl ár hefði staðið fyrir þenslu, helmingaskiptum og stóriðjustefnu. Þá sagði Svandís að baráttan um Bitru væri hafin á ný og andstaðan við virkjunina yrði áfram kröftug. Spurði Svandís enn fremur hvort það væri á næsta leiti að henda Samfylkinguna út úr ríkisstjórn til þess að halda áfram stóriðjustefnu hér á landi. Enn fremur vísaði Svandís til fréttar Vísis í gær af veiðiferð Orkuveituforkólfa í boði Baugs í Miðfjarðará í fyrra. Las hún upp úr fréttinni og benti á að veiðin hefði verið farin í aðdraganda REI-málsins. Enn fremur sagði Svandís að full ástæða væri til að kanna hvort hægt væri að breyta sveitarstjórnarlögum svo hægt væri að kjósa við sérstakar aðstæður. Vinstri - græn myndu vinna að því máli.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fleiri fréttir Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Sjá meira