Meirihluti endurkrafna á tjónvalda í umferðinni vegna ölvunaraksturs 21. ágúst 2008 12:01
Samtals bárust endurkröfunarnefnd 88 ný mál til úrskurðar á árinu 2007 á hendur þeim sem tjóni ollu af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Langflestar kröfunnar voru vegna ölvunaraksturs. Ölvun ástæða í 62% tilvika Vátryggingafélög geta eignast þennan endurkröfurétt af greiddu tjóni samkvæmt umferðarlögum. Af málunum 88 samþykkti nefndin, sem skipuð er af Viðskiptaráðherra, endurkröfu að öllu leyti eða að hluta í 71 máli. Á árinu 2006 var heildarfjöldi mála á hinn bóginn 103, og samþykktar endurkröfur að öllu eða einhverju leyti 98. Ástæður endurkröfu eru langoftast ölvun tjónvalds, eða í 44 tilvikum. Lyfjaáhrif var ástæða endurkröfu í fjórum tilvikum, í átján málum voru ökumenn endurkrafðir sökum ökuréttindaleysis, vegna beins ásetnings voru tveir ökumenn endurkrafðir og loks fyrir stórkostlega vítavert aksturslag eða glæfraakstur voru sex ökumenn endurkrafðir. Í sumum málum voru ástæður endurkröfu fleiri en ein. Hærri endurkröfugreiðsla þrátt fyrir færri mál Samtals nema þessar endurkröfur tæplega 42.5 milljónum króna og er þá einnig tekið tillit til viðbótarendurkrafna í eldri málum. Tvær hæstu endurkröfurnar námu 3.5 milljónum króna hvor árið 2007 og sú næsthæsta nam þremur milljónum króna. Alls voru tólf endurkröfur fimm hundruð þúsund krónur eða meira á árinu 2007. Á árinu 2006 námu hins vegar samþykktar endurkröfur alls tæplega 29 milljónum króna. Af hinum endurkröfðu tjónvöldum voru karlar 61 en konur voru tíu, eða um 14%. Hlutur kvenna í málum af þessu tagi var hins vegar 21% á árinu 2006. Ökumenn 25 ára og yngri áttu hlut að um 48% mála en áttu 42% mála árið 2006.
Mest lesið Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Innlent Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Innlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Innlent Lífið gjörbreytt Innlent „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Innlent Elsti Íslendingurinn er látinn Innlent Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Innlent Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Innlent Hlaup hafið í Skaftá Innlent Fleiri fréttir „Fólk í neyslu úr öllum stéttum landsins“ Kókaínreykingar algengari, vonbrigði í vegagerð og háskaleg eftirför lögreglu Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Taldi brúðkaup í Keníu ekki telja og krefst ógildingar Slökktu eld á Stórhöfða Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Elsti Íslendingurinn er látinn Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Hafnarfjörður mátti ekki afturkalla ráðningu Óskars Steins Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Furðar sig á uppbyggingu við inngang þjóðgarðsins Grindvíkingar fái að velja hvar þeir kjósa „Auðvitað er forgangsröðun jarðganga vonbrigði fyrir mig“ „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Ekki búið að bera kennsl á þann sem ekið var á Uggur í læknum og samtöl við Norðurlönd nauðsynlegt Fóru ekki fram á lengra varðhald yfir lögmanninum Áhyggjufullir læknar Hlaup hafið í Skaftá Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Lífið gjörbreytt Grindvíkingar hugsa um að fara heim: Gott að vera í Grindavík en verður aldrei eins Króuðu stolinn bíl af í Kömbunum eftir eftirför þvert yfir Hellisheiði Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Málaflokkurinn kosti sveitarfélögin milljarða Áföllin hafi mótað sig Gramir að næstu göng á lista séu ekki á Austurlandi Herflugvél snúið við í neyð Mikið áhyggjuefni ef læknar komast ekki utan í sérnám Sjá meira