Innlent

Höfðu ekki unnið lengi á Íslandi

Tveir menn létust vegna súrefnisskorts þegar þeir fóru inn í veiturör við Hellisheiðarvirkjun í gærkvöldi. Rörið var tæmt af vatni og gufu á þriðjudag og viðhaldsvinna átti að hefjast við það í dag.

Kallað var eftir aðstoð lögreglu upp úr klukkan sjö í gærkvöldi. En mennirnir sem létust voru frá Rúmenínu og unnu hjá verktakafyrirtækinu Altaki sem sér um stálsmíði við Hellisheiðarvirkjun. Annar þeirra var fjörtíu og sex ára og hinn þrjátíu og þriggja ára. Um eða yfir þrjú hundruð manns vinna við virkjunina, þar af um hundrað og fimmtíu útlendingar. Mennirnir tveir sem létust höfðu ekki unnið lengi á Íslandi.

Ekki er vitað hvort það var súrefnisskortur eða eitrun sem varð mönnunum að bana en rannsókn Vinnueftirlitsins og lögreglunnar beinist meðal annars að því. Lík mannanna voru flutt af slysstaðnum tæpum nítíu mínútum eftir slysið og flutt til Reykjavíkur, þar sem þau verða krufin.

Strax eftir slysið voru samlandar mannanna fluttir í kaffistofu virkjunarinnar þar sem starfsfólk Rauða krossins veitti þeim áfallahjálp. Nokkurn tíma mun hafa tekið að útvega rúmenskan túlk en aðeins hluti rúmensku starfsmannanna talar ensku. Tveir túlkar aðstoðuðu svo Rauða kross liða við að veita starfsmönnunum sálrænan stuðning.

Mennirnir tilheyrðu Rétttrúnaðarkirkjunni en hefðir hennar gera ráð fyrir að fólk sé jarðsett innan þriggja daga frá andláti. Prestur frá Rétttrúnaðarkirkjunni ræðir við samstarfsmenn mannanna í dag.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×