Hvetur kjósendur til þess að gleyma ekki vinnubrögðunum 21. ágúst 2008 11:07 Dagur B. Eggertsson. Valgarður
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar fór hörðum orðum um þá borgarfulltrúa sem standa að nýjasta meirihlutanum í borginni. Hann sagði að borgarbúar hafi á undanförnum misserum ítrekað þurft að horfa upp á hvernig kjörnir fulltrúar hefðu misfarið með vald sitt og brotið gegn lýðræðinu. Dagur sagði borgarbúa hafa horft upp á það í janúar síðastliðinn hvernig borgarstjórnarhópur Sjálfstæðisflokksins hefði hrunið saman innanfrá í janúar þegar REI málið kom upp. Síðan hafi menn reynt að bjarga málunum með því að fá Ólaf F. Magnússon í lið með sér. „Allt sem sagt var þá hefur komið á daginn," sagði Dagur og bætti því við að sú skömm sem þá var uppi sé nú orðin að áhrínisorðum. Að mati Dags mun sá leikur sem leikinn var þegar Ólafur F. var fenginn til samstarfs verða dæmdur í sögunni sem einn ljóstasti leikur sem sést hefur á sviði íslenskra stjórnmála. „Vonandi gerist slíkt aldrei aftur," sagið Dagur og bætti við: „Það sem við treystum okkur ekki til að kenna börnum okkar sem leikreglur í lífinu eigum við ekki að iðka í stjórnmálum." Hann sagðist ekki trúa því að menn vilji búa í samfélagi þar sem orð standa ekki og leikið er tveimur skjöldum. „Einu rökin fyrir nýjum meirihluta er að leiðrétta þurfti það sem gert var í janúar," sagði Dagur. „En hver bar ábyrgð á því," spurði hann. Hann sagði einnig að fróðlegt verði að fylgjast með því hvernig nýji meirihlutinn ætli sér að gera upp REI málið, þar sé ýmsu ósvarað. Dagur segir að í stað þess að vinna að innanmeinum í flokki sínum hafi Sjálfstæðismenn einbeitt sér frekar að því að undirbúa „stóra tilboðið" eins og hann kallaði það þegar Ólafi F. Magnússyni var gert „tilboð sem hann gat ekki hafnað." Dagur sagði einnig að kjósendur sjálfstæðisflokksins eigi miklu betra skilið og hann spurði hversu marga hringi Sjálfstæðisflokkurinn ætli sér að fara í borgarmálunum. Hann sagði einnig liggja fyrir að Óskar Bergsson hafi ekki haft bein í sér né nægilegt sjálfstraust til þess að standa á þeim grundvallarreglum sem hann lagði sjálfur í janúar þegar minnihlutaflokkarnir lýstu yfir samstarfi í stjórnarandsstöðu út kjörtímabilið. Hann benti á að sá samningur og þær yfirlýsingar sem þá voru gefnar hafi einmitt snúist um það að heita því að ástunda ekki vinnubrögð af því tagi sem nú hefur verið beitt enn á ný að hans mati. „Merkilegt nokk þá datt sjálfstæðisflokknum ekki í hug að impra á því við okkur í Samfylkingunni og VG hvort það væri færi á meirihluta með okkur. Við hljótum að taka því sem hrósi, því það þurfti ekki að spyrja hvort við stæðum við orð okkar." Að lokum sagði hann Samfylkingu og VG einbeitt í þeirri viðleitni sinni að halda áfram uppbyggilegu aðhaldi í Reykjavík. „Við finnum fyrir ábyrgð því borgarbúar horfa til minnihlutans. Þá ábyrgð ætlum við að axla. Þau verk sem sjálfstæðismenn og meðleikarar hans hafa unnið eru unnin í trausti þess að þau gleymist, og það má einmitt ekki gerast. Þessvegna bið ég borgarbúa um að gera samning innra með sér, að jafnvel þó hér hafi verið ástundaður skrípaleikur í trausti þess að kjósendur muni gleyma þessu þá megi menn ekki gera það." „Dagurinn í dag er dagur til að gera það upp við sig hvort maður muni nokkurntíma skrifa upp á vinnubrögð af þessu tagi. Við höfum sagt nei."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fleiri fréttir „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Sjá meira