Deildar meiningar um hálkuvarnir 2. október 2008 12:55
Strætisvagn lenti í vandræðum á Akureyri í morgun vegna hálku. Deildar meiningar eru um hvort mengunarvarnir bæjarins gegn svifryki bitni á hálkuvörnum. Mælingar hafa sýnt að svifryk á Akureyri fer oft yfir leyfileg heilsuverndarmörk. Þess vegna ákvað bærinn fyrir skemmstu að sandburður yrði stórminnkaður en sandur hefur verið helsta tæki bæjarins gegn hálku á götum. En í morgun söknuðu margir sandsins þegar fljúgandi hálku gerði á götum bæjarins á sama tíma og varnir gegn henni þóttu rýrar í roði. Eftir að strætó lenti í vandræðum í Gilinu og rann niður götuna, en þó án þess að eignatjón yrði eða nokkur slasaðist, fór lögregla fram á að bærinn bætti ástandið. Varð niðurstaðan sú að bærinn dreifði salti eins og hefð er fyrir á höfuðborgarsvæðinu en mikil andstaða hefur alltaf verið á Akureyri gegn saltinu. Annars segir lögregla furðu sæta hvað umferð gekk vel á Akureyri í hálkunni í morgun miðað við að flestir eru enn á sumardekkjum. Þó varð lítils háttar umferðaróhapp í Hörgárdal. Mikið annríki hefur verið á hjólbarðaverkstæðum í dag enda má samkvæmt veðurspánni búast áfram við kulda og hálku á Norðurlandi.
Mest lesið Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Algjörlega óásættanleg staða Innlent Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Innlent Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Innlent Hættu við lendingu í miðju aðflugi Innlent Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Innlent „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sjá meira