Breyttar áherslur með nýjum málefnasamningi 21. ágúst 2008 19:15
Það hillir undir Bitruvirkjun og ákvörðun um framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar, samkvæmt málefnasamningi meirihlutans sem tók við Reykjavíkurborg í dag. Ekkert bendir til að kapp verði lagt á að varðveita nítjándu aldar götumynd Laugavegarins. Sjö mánuðir eru síðan Sjálfstæðismenn og Frjálslyndir kynntu það sem þeir hygðust gera fyrir borgina. Í dag lögðu Sjálfstæðismenn og Framsóknarflokkur fram sinn nýja málefnasamning. Samningarnir tveir eru keimlíkir að sumu leyti, í báðum er rætt um framboð lóða fyrir fjölskyldur og fyrirtæki og almennt orðuð markmið um betri þjónustu við fjölskyldur og eldri borgara. Hins vegar greinir þá í sundur í mikilvægum málum. Nýtt í málefnasamningi dagsins er: - að aðgerðaráætlun vegna breytinga í fjármála- og atvinnuumhverfi verður lögð fram fyrir 1. október. -loftslagsáætlun fyrir Reykjavík á að liggja fyrir innan árs. - sátt hefur náðst um útrás Orkuveitunnar, eins og áður hefur verið greint frá, með stofnun fjárfestingarsjóðs. Þrennt í nýja málefnasamningnum er á skjön við fyrirætlanir síðasta meirihluta Sjálfstæðismanna með Ólafi F.: - í fyrsta lagi að rannsóknir vegna Bitruvirkjunar hefjast á ný. Hvergi var minnst á Bitru í síðasta samningi - enda öllum ljós andstaða fyrrverandi borgarstjóra við þá virkjun. - í öðru lagi þögnin um margrædda nítjándu aldar götumynd Laugavegarins, sem var ofarlega á lista síðasta meirihluta, en er nú hvergi nefnd á nafn. -í þriðja lagi er hvergi minnst á lækkun skatta eins og fyrir sjö mánuðum. Þá hugðist meirihlutinn lækka fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði - sem hann gerði, um fimm prósent. Einnig átti að hækka tekjumörk fyrir niðurfellingu fasteignaskatta hjá elli- og örorkulífeyrisþegum - það var ekki gert. - Og síðast en ekki síst ætlar nýi meirihlutinn strax í haust að óska eftir viðræðum við ríkisvaldið um framtíðarstaðsetningu innanlandsflugvallar. Fyrir sjö mánuðum ákváðu Ólafur og Sjálfstæðismenn hins vegar að ákveða ekki flutning Reykjavíkurflugvallar. Hér er hlaupið yfir verkefnalista nýja meirihlutans, og er hreint ekki tæmandi því málefnasamningur fyrsta meirihluta þessa kjörtímabils er í fullu gildi. Hvort að Óskar Bergsson er til dæmis jafn umhugað um upptöku skólabúninga og forveri hans, Björn Ingi Hrafnsson, á til að mynda eftir að koma í ljós.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fleiri fréttir Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Sjá meira