Innlent

Ellefu sækja um starf forstjóra Veðurstofu Íslands

Ellefu sóttu um starf forstjóra nýrrar stofnunar sem verður til við sameiningu Veðurstofu Íslands og Vatnamælinga Orkustofnunar. Hin nýja stofnun mun bera nafn Veðurstofu Íslands.

Umsóknarfrestur rann út 11. júlí síðastliðinn en gert er ráð fyrir að forstjórinn hefji störf hinn 1. ágúst næstkomandi til að undirbúa starfsemi hinnar nýju stofnunar.

Eftirtalin sóttu um starfið:

Ólafur Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Reiknistofu í veðurfræði ehf.

Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur og prófessor við HÍ

Árni Snorrason, forstöðumaður Vatnamælinga Orkustofnunar

Sólveig Þorvaldsdóttir, ráðgjafarverkfræðingur hjá Rainrace ehf.

Steinunn S. Jakobsdóttir, sviðsstjóri eðlisfræðisviðs Veðurstofu Íslands

Sigrún Karlsdóttir, deildarstjóri spádeildar Veðurstofu Íslands

Þóranna Pálsdóttir, forstöðumaður veðursviðs Veðurstofu Íslands

Conny Larsson, dósent í veðurfræði við jarðvísindastofnun Uppsalaháskóla

Sverrir Jensson, sjálfstætt starfandi við rannsóknir í veðurfræði og stærðfræði

Ísak Örn Sigurðsson, sjálfstætt starfandi/ráðgjöf

Hulda Birna Baldursdóttir, markaðsstjóri.

Þetta kemur fram á vef Umhverfisráðuneytisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×