Innlent

Ölvaður ökumaður slapp ótrúlega vel úr bílveltu

Ölvaður ökumaður slapp ótrúlega lítið meiddur, að sögn lögreglunnar í Borgarnesi, þegar hann velti bíl sínum á Snæfellsnesvegi í Kolbeinsstaðahreppi um klukkan þrjú í nótt.

Bíllinn fór að minnstakosti tvær heilar veltur uns hann nam staðar, gjörónýtur.

Ökumaður, sem var einn í bílnum , var fluttur á heilsugæslustöðina í Borgarnesi, en var útskrifaður þaðan fljótlega, í hendur lögreglunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×