Rándýrum heimilstækjum stolið úr bústöðum 3. nóvember 2008 13:27 MYND/Róbert
Lögreglan á Selfossi leitar nú innbrotsþjófs eða -þjófa sem létu greipar sópa í tveimur sumarbústöðum og gróðrastöð í liðinni viku. Þannig var brotist inn í sumarbústað í landi Efri Reykja í Bláskógabyggð einhvern tíma frá þriðjudegi til fimmtudags og þaðan stolið heimilstækjum að verðmæti á milli 700 og 800 þúsund króna. Stolið var Elektrolux-heimilistækjalínu, flatskjá og tveimur Philips-heimabíókerfum. Um svipað leyti var brotist inn í sumarbústað í landi Kiðjabergs og þaðan stolið 50 tommu sjónvarpstæki, Bose-heimabíói, Bang og Olufsen útvarpstæki, sjónauka og málverkum. Þriðja innbrotið á þessum slóðum var í gróðrastöðina að Espiflöt í Laugarási aðfaranótt fimmtudagsins 30. október. Þaðan var stolið sex gróðurhúsalömpum. Hver sá sem veitt getur upplýsingar um þessa muni eða nokkru því er leitt geta til þess að upplýsa þessi þrjú innbrot er beðinn að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010. „Lögreglan beinir því til allra húseiganda hvort heldur er íbúðarhús eða frístundahús að gera allt sem hægt er til að hindra þjófa í að komast inn í hús. Í frístundabyggðum er sem dæmi hægt að loka vegum með hliðum en hafa ber í huga að til þess þarf leyfi sveitarstjórnar. Þá er hægt að setja upp þjófavarnarkerfi og síðast en ekki síst að lágmarka verðmæti í húsum eins og kostur er. Einnig getur skipt máli að draga fyrir glugga svo ekki sjáist inn í húsin. Íbúðareigendur í þéttbýli ættu að gæta þess að fara ekki frá ólæstum húsum eða með opnum gluggum jafnvel þó ekki sé verið að fara lengra en í næsta hús. Þar á einnig við að vera ekki með hluti eins og fartölvur þannig staðsettar að þær sjáist utanfrá. Stórar peningaupphæðir er fráleitt að að geyma í heimahúsum. Í bönkum er hægt að leigja bankahólf sem eru hentug til að geyma verðmæta pappíra og önnur verðmæti sem lítið fer fyrir," segir lögreglan á Selfossi í dagbók sinni.
Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Flughált í höfuðborginni og víðar um land Innlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Fleiri fréttir Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Sjá meira