Framsóknarmenn vilja að forsætisráðherra segi af sér 3. nóvember 2008 21:40
Framsóknarfélag Akranes lýsir miklum áhyggjum að stórauknu atvinnuleysi, aukinni verðbólgu, falli krónunnar og hruni fjármálakerfisins. Framsóknarfélag Akranes leggur áherslu á mikilvægi öflugs atvinnulífs, nýsköpunar og þróunar. Framsóknarfélag Akranes hvetur stjórnvöld til þess að beita öllum tiltækum úrræðum til að koma í veg fyrir yfirvofandi gjaldþrot heimila og fyrirtækja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu nú í kvöld. Þar segir ennfremur: „Bregðast þarf við hækkunum vísitölu- og gengistryggðra lána með frystingum, lánalengingum og hlutaafskriftum. Forsendubrestur hefur í reynd orðið hjá velflestum landsmönnum í tengslum við þær fjárskuldbindingar sem gerðar hafa verið á undanförnum mánuðum og árum. Marka verður meginlínur þ.a. jafnræðisregla verði virt gagnvart öllum skuldugum einstaklingum. Það getur ekki verið þjóðhagslega hagkvæmt að neyða þorra landsmanna í þrot, heldur þvert á móti. Búast má við að hækka þurfi skatta á einstaklinga og fyrirtæki vegna efnahagsástandsins. Framsóknarfélag Akranes hvetur stjórnvöld til að hækka samhliða persónuafslátt þ.a. sú aðgerð verði að mestu án áhrifa á þá sem þiggja lægstu launin. Samhliða verði stimpilgjald afnumið af öllum lánum til að auðvelda skuldbreytingar og almenna greiðsluaðlögun fyrirtækja og einstaklinga. Framsóknarfélag Akranes telur nauðsynlegt í ljósi atburða undangengis mánaðar að boðað verði til kosninga svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en í mars 2009. Framsóknarfélag Akranes hvetur Alþingi til þess að afgreiða fyrir kosningar breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins með þeim hætti að annars vegar verði þar skilgreind sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar og hins vegar heimildir til takmarkaðs framsals ríkisvalds til alþjóðastofnanna að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Framsóknarfélag Akranes hvetur jafnframt til þess að samhliða kosningum verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, ef þá þegar hefur ekki verið sótt um aðild . Framsóknarfélag Akranes telur óumflýjanlegt að helstu leiðtogar stjórnmálanna sem og megin ríkisstofnanna efnahagsmálanna axli ábyrgð og segi af sér. Þ.á m. forsætis-, fjármála- og viðskiptaráðherra, bankastjórar Seðlabankans og forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Framsóknarfélag Akranes lýsir sérstökum áhyggjum yfir stöðu Framsóknarflokksins. Endurnýjun flokksforystunnar er óumflýjanleg og hvetur Framsóknarfélag Akranes miðstjórn flokksins til þess að bregðast við með óyggjandi hætti hafi forysta flokksins ekki sjálf frumkvæði að breytingum."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira