Um 2500 manns sagt upp í fjöldauppsögnum í síðasta mánuði 3. nóvember 2008 16:39
Um 2500 manns var sagt upp í hópuppsögnum í nýliðnum októbermánuði samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Að sögn Gissurar Péturssonar, forstjórar stofnunarinnar, komu flestar uppsagnanna í síðustu viku en eftir á að greina nákvæmlega hvernig þær skiptast eftir greinum. Þó sé vitað að stærstur hluti uppsagnanna hafi verið í byggingargeiranum og tengdri starfsemi en inni í tölunum séu einnig uppsagnir hjá bönkunum og hjá framleiðslufyrirtækjum. Gissur bendir á að við þennan fjölda bætist uppsagnir í minni fyrirtækjum og þær sem ekki falla undir lög um hópuppsagnir. Þar gætu verið ferðinni einhver hundruð til viðbótar sem sagt var upp. Fjöldi þeirra sjáist ekki fyrr en uppsagnarfresturinn er liðinn og fólk sækist eftir atvinnuleysisbótum. Hann bendir á að flestir þeir sem sagt var upp fyrir mánaðamótin séu með á bilinu eins til þriggja mánaða uppsagnarfrest og því séu þessir 2500 einstaklingar ekki komnir inn á atvinnuleysisskrá. Það geri þeir að líkindum á tímabilinu frá 1. desember til 1. febrúar en þess má geta að samkvæmt heimasíðu Vinnumálastofnunar eru um 4.200 manns nú án vinnu. Því má búast við að tala atvinnulausra verði að minnsta kosti sex þúsund manns í upphafi næsta árs. Um framhaldið segir Gissur að ljóst sé atvinnulausum muni fjölga enn frekar. Hann bendir á að atvinnuleysi hér hafi verið lítið sem ekkert þar til fyrir nokkru en aukningin í fjölda atvinnulausra hafi verið stuðandi að undanförnu og hún sé mjög hröð. Vonandi taki þetta fljótt enda.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira