Skipulagsstofnun svarar fyrir sig 27. maí 2008 13:20 Stefán Thors, skipulagsstjóri.
Skipulagsstofnun hefur svarað gagnrýni á hendur stofnuninni sem sett hefur verið fram í kjölfarið á áliti hennar á Bitruvirkjun. Samorka hefur meðal annars haldið því fram að Skipulagsstofnun hafi farið út fyrir valdsvið sitt í málinu. Í tilkynningu frá Skipulagsstofnun segir: „Skipulagstofnun birti álit sitt á umhverfisáhrifum Bitruvirkjunar mánudaginn 19. maí sl. Í fjölmiðlum hefur verið látið að því liggja að Skipulagsstofnun hafi hafnað virkjuninni eða lagst gegn henni og farið með því út fyrir valdsvið stofnunarinnar. Í yfirlýsingu frá Samorku er því t.d. haldið fram að hlutverk Skipulagsstofnunar sé ekki að taka afstöðu heldur fyrst og fremst að staðfesta að matið hafi verið unnið með lögbundnum hætti." Í tilkynningunni segir einnig, að rétt sé að samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 með síðari breytingum komi fram að Skipulagsstofnun skuli gefa rökstutt álit sitt á því hvort matsskýrsla framkvæmdaraðila uppfylli skilyrði laganna og reglugerða settra samkvæmt þeim auk þess sem umhverfisáhrifum sé lýst á fullnægjandi hátt. „Það sem hins vegar virðist hafa farið framhjá mörgum sem hafa tjáð sig um málið er að í 24. gr. reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum nr. 1123/2005 segir m.a. að Skipulagsstofnun skuli gera grein fyrir helstu forsendum matsins og niðurstöðum stofnunarinnar um mat á umhverfisáhrifum,"segir í tilkynningunni. „Þetta þýðir með öðrum orðum að Skipulagsstofnun ber í áliti sínu að leggja mat á umhverfisáhrifin. " „Í lögunum og reglugerðinni kemur fram að telji Skipulagsstofnun að setja þurfi frekari skilyrði fyrir framkvæmd en fram koma í matsskýrslu eða gera þurfi aðrar eða frekari mótvægisaðgerðir skal stofnunin tilgreina skilyrðin og mótvægisaðgerðir og færa rök fyrir þeim." „Í því sambandi er vandséð hverning stofnunin á að geta lagt til skilyrði ef hún á ekki leggja mat á umhverfisáhrifin. Skipulagsstofnun hefur á undanförnum 3 árum sent frá sér 12 álit á umhverfisáhrifum framkvæmda." „Í 3 tilvikum hefur niðurstaðan verið að umhverfisáhrifin myndu verða ekki ásættanleg og óafturkræf. Í áliti Skipulagsstofnunar um umhverfisáhrif Bitruvirkjunar, sem byggt er upp á sama hátt og fyrri álit, er ekki verið að „leggjast gegn" eða „hafna" byggingu Bitruvirkjunar. Það er ekki hlutverk Skipulagstofnunar. Við útgáfu leyfis til framkvæmda ber hins vegar leyfisveitanda að taka rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar og birta opinberlega ákvörðun sína sem er kæranleg til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira