Vilja að tillögur að Landsbankahöfuðstöðvum verði sýndar 14. desember 2008 12:07
Arkitektar vilja að leynd verði aflétt af tillögum í samkeppni upp á hundruð milljóna um höfuðstöðvar Landsbankans við Reykjavíkurhöfn. Bankinn treystir sér ekki til að birta niðurstöðurnar. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag. Heimsfrægar arkitektastofur voru í hópi 21 stofu sem valdar voru til þátttöku. Björgólfur Guðmundsson, aðaleigandi Landsbankans, var sjálfur formaður dómnefndarinnar og lágu niðurstöður hennar fyrir strax í júní. Þær hafa hins vegar aldrei komið fyrir augu almennings. Þátttökuþóknanir og verðlaunafé nam um 150 milljónum króna, en samalagt má gera ráð fyrir að kostnaður við samkeppnina hafi hlaupið á hundruðum milljóna króna. Í ljósi gjörbreyttra aðstæðna blasir þó við að ekki verður byggt eftir vinningstillögunni. Haft er eftir formanni Arkitektafélags Íslands í Fréttablaðinu að þó sé mjög brýnt sé að tillögurnar komi fyrir almenningssjónir og hvernig hægt sé að nýta þetta svæði í hjarta borgarinnar. Í bréfi til borgarstjóra býðst Arkitektafélagið til að standa fyrir slíkri sýningu. Erindinu hefur verið vísað til skipulagsfulltrúa borgarinnar.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun Sjá meira