Íslendingar gætu hagnast á olíu við Austur-Grænland 19. nóvember 2008 18:53
Olíu- og gaslindir við Austur-Grænland eru taldar tvöfalt meiri en á Drekasvæðinu. Bæjarstjóri Ísafjarðar segir þarna mikil tækifæri sem Vestfirðingar ætli að nýta.Sérfræðingar norska olíufélagsins Sagex birtu fyrir tveimur mánuðum mat á stærð olíu- og gaslinda í norðanverðu Atlantshafi og töldu að á Drekasvæðinu gætu leynst tuttugu milljarðar tunna af olíu og gasi, álíka mikið og í Noregshafi. Þeir telja hins vegar að tvöfalt meira sé við Austur-Grænland. Á báðum þessum svæðum er að fara í gang leit og hugsanleg vinnsla sem gæti kallað á vaxandi starfsemi í landi á næstu árum og áratugum.Vegna olíuleitar á Drekasvæðinu eru sveitarfélögin Vopnafjörður og Langanesbyggð byrjuð að undirbúa uppbyggingu þjónustumiðstöðvar á Norðausturlandi. Vestfirðingar eru einnig farnir að huga að því hvaða tækifæri olíuleit við Austur-Grænland norður af Íslandi gæti gefið byggðarlögum Vestfjarða.Þannig var bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Halldór Halldórsson, í föruneyti utanríkisráðherra í opinberri heimsókn til Grænlands síðastliðið sumar, til að kynna sér málin. Halldór segir Vestfirðinga sjá þarna mikil tækifæri, sem þeir ætli að nýta, og bendir á að hafnir við austurströnd Grænlands séu lokaðar vegna hafíss stóran hluta ársins. Olíuleit þar kalli á mikla þjónustu sem hentugt verði að veita frá Íslandi. Hugsanleg olíuhreinsistöð á Vestfjörðum segir Halldór auka enn á möguleika fjórðungsins gagnvart olíulindum við Austur-Grænland.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Fleiri fréttir Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Sjá meira