Stjórnarslitin í Bolungarvík koma Grími á óvart Breki Logason skrifar 22. apríl 2008 10:58 Grímur Atlason bæjarstjóri í Bolungarvík MYND/Vilhelm „
Þetta kemur mér gríðarlega mikið á óvart," segir Grímur Atlason bæjarstjóri Bolungarvíkur um stjórnarslitin í bæjarstjórn sveitarfélagsins. Meirihlutasamstarf A-lista og K-lista í Bolungarvík sprakk í gær en það var A-listinn sem sleit samstarfinu. Ef marka má ummæli Önnu Guðrúnar Edvardsdóttur oddvita A-listans í frétt á bb.is er ástæðan sú að oddviti K-listans sé með of mikil umsvif í bænum sem skapi óhjákvæmilega hagsmunaárekstra. „Þetta er eins og með nútímann að það þarf oft svo ótrúlega lítið til svo fólk hlaupist undan merkjum," segir Grímur og bætir við að í 900 manna samfélagi sé það óhjákvæmilegt að einhver sem er í bæjarstjórn eigi eitthvað í einhverju fyrirtæki. Hann segir óánægju með umsvif oddvita K-listans ekki hafa komið upp áður. Grímur var ráðinn bæjarstjóri og hefur setið sem slíkur í stjórnartíð A-lista og K-lista. Aðspurður hvort hann sé á leiðinni til Reykjavíkur segir Grímur: „Ég á hús í Bolungarvík og hér finnst mér gott að vera. En ef fólk kýs það að losa sig við mig þá verður svo að vera. Þetta eru bara örlögin en ég er með ráðningarsamning hér áfram, þetta verður því bara að koma í ljós."
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Fleiri fréttir Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Sjá meira