Miðar á ABBA sýningu rjúka út 26. september 2008 17:14 „
Við héldum að þetta færi rólega af stað þar sem sex vikur eru í tónleikana en það er greinilega mikill áhugi fyrir hendi," segir Eyþór Guðjónsson, skipuleggjandi The ABBA show með hljómsveitinni Arrival. Miðasala á viðburðinn fór af stað með miklum krafti í morgun á midi.is. Um 1.500 miðar seldust á skömmum tíma sem þýðir að einungis um 500 miðar eru eftir á tónleikana sem fram fara í Vodafone-höllinni 8. nóvember. „Við höfum heyrt af hópum fólks sem skipulagt hafa uppákomur fyrir og eftir tónleikana til þess að gera daginn enn skemmtilegri. Sumir ætla að mæta í ABBA-búningunum þannig að það má búast við skemmtilegri uppákomu," segir Eyþór, sem býst allt eins við því að töluvert verði af spandexi í Vodafone höllinni þennan dag. Hljómsveitin Arrival hefur ferðast með ABBA-sýninguna í þrettán ár, eða lengur en sjálf hljómsveitin ABBA starfaði, og komið fram í yfir 20 löndum. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda og hafa ABBA-aðdáendaklúbbar víða um heim kosið hana bestu ABBA-sýningu allra tíma. Í Bandaríkjunum seljast 8.000-20.000 miðar á hverja sýningu. Sumir gagnrýnendur ganga svo langt að segja Arrival betri en upprunalegu ABBA-hljómsveitina. Hljómsveitina Arrival, sem er nefnd eftir samnefndri metsöluplötu ABBA, skipa 12 tónlistarmenn og er allur tónlistarflutningur fluttur „lifandi". Mikið er lagt í búninga en Arrival er eina hljómsveit í heimi sem hefur leyfi til að klæðast nákvæmum eftirlíkingum af búningum ABBA. Arrival vinnur náið með höfuðpaurum ABBA, þeim Björn og Benny, og er þessa dagana að gefa út áður óútgefið ABBA-lag sem ber heitið Just a notion.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira