Popparar moka upp laxinum Gunnar Lárus Hjálmarsson skrifar 10. september 2008 18:00 Nýjasta liðsskipan Pops Birgir Hrafnsson (annar frá vinstri) og Óttar Felix (lengst til hægri) hafa verið að moka upp laxi í sumar. Aðrir í bandinu eru Jón Ólafsson, Eiríkur Hauksson og Sigurgeir Sigmundsson. „
Það hefur verið óvenju gjöfult í laxveiðinni í ár,“ segir Óttar Felix Hauksson. Hann og Birgir Hrafnsson félagi hans í Pops hafa hreinlega verið að moka laxinum upp í sumar. „Við áttum besta holl sumarsins í Grímsá í Borgarfirði. Fengum 188 laxa í þriggja daga holli. Í gær og á mánudaginn vorum við í Eystri-Rangá og fengum yfir hundrað,“ segir Óttar. Oft stækkar hópurinn og í síðustu viku voru Óttar og Birgir í sjö manna hópi sem tók þriggja daga holl í Laxá í Aðaldal. Páll Magnússon sjónvarpsstjóri og Björgvin Halldórsson voru meðal þeirra sem bættust við en Jafet Ólafsson fékk stærsta laxinn í ferðinni, 22ja punda hæng. „Ég setti reyndar í mun stærri fisk,“ fullyrðir Óttar. „Hann kom á í Höfðahyl en þar fékk einmitt Jakob Hafstein úr MA-kvartettinum stærsta flugufisk Íslandssögunnar, 36 punda lax, árið 1942. Það er skjöldur á stein þarna til minningar um afrek hans og ég var farinn að sjá fyrir mér að nú þyrfti að búa til nýjan skjöld. Því miður tókst fiskinum að rífa sig lausan.“ Nú þegar laxveiðitímabilinu fer að ljúka segir Óttar að Pops muni vakna til lífsins. „Við spilum eitthvað í haust og vetur. Við þurfum bara að heyra í Eika Hauks til að sjá hvenær hann er laus.“ Pops spilaði í Norræna húsinu á dögunum, sem Óttar segir hafa verið nýbreytni í. „Fyrst lásu Sigurður Pálsson og Þórarinn Eldjárn upp í klukkutíma og svo komum við og rokkuðum. Þetta er blanda sem menn ættu að huga betur að.“
Mest lesið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Fleiri fréttir Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Sjá meira