Innlent

Mannbjörg er bát með tveimur mönnum hvolfdi

Björgunarsveitin Berserkir á Stykkishólmi var kölluð út klukkan 18:16 í dag þegar plastbát með tveimur mönnum innanborðs hvolfdi í höfninni í Stykkishólmi, um 150 m. frá landi.

Björgunarsveitin fór á staðinn og náði mönnunum upp úr sjónum og var komin með þá í land um 20 mínútum síðar.

Mennina tvo sakaði ekki enda voru þeir vel búnir, í göllum og með björgunarvesti en þeir voru nokkuð kaldir eftir volkið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×