Sat fund NATO-ráðherra um átök Rússa og Georgíumanna 19. ágúst 2008 15:35 MYND/Pjetur
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sat í dag sérstakan aukafund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel þar sem fjallað var um ástand mála í Georgíu og viðbrögð bandalagsins við hernaðaraðgerðum Rússa í landinu. Fram kemur í tilkynningu utanríkisráðuneytisins að ráðherrarnir hafi samþykkt yfirlýsingu þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við vopnahléssamkomulagið sem forsetar Georgíu og Rússlands undirrituðu fyrir tilstuðlan formennsku Frakka í Evrópusambandinu, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og Bandaríkjanna. Þá ítrekuðu ráðherrarnir að sjálfstæði og landamæri Georgíu yrði að fullu virt og hörmuðu fall óbreyttra borgara. Í yfirlýsingunni er átökunum í Suður-Ossetíu lýst sem ógn við svæðisbundið öryggi og eru Rússar hvattir til að standa við gefin loforð og kalla herlið sitt frá Georgíu nú þegar og tryggja að neyðaraðstoð komist til skila án tafar.„Full samstaða náðist meðal bandalagsríkja um aðgerðir til stuðnings Georgíu, einkum innan ramma núverandi samstarfs NATO og Georgíu. Ráðherrarnir ítrekuðu yfirlýsingu leiðtogafundar bandalagsins í Búkarest, frá því í apríl sl., um Georgíu. Einnig var ákveðið að stofna til viðræðna við stjórnvöld í Georgíu um að setja á fót sérstaka NATO-Georgíunefnd.Þá átaldi bandalagið Rússland fyrir að beita óhóflegu vopnavaldi og áréttaði mikilvægi þess að rússnesk stjórnvöld virtu þau gildi sem ríkja í samskiptum Rússlands og NATO," segir einnig í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fleiri fréttir Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Sjá meira