Bannað að selja kveikjara án barnalæsingar 16. júlí 2008 15:15
Viðskiptaráðuneytið hefur birt nýja reglugerð um bann við markaðssetningu, dreifingu og sölu kveikjara án barnalæsingar og kveikjara með óhefðbundið útlit sem höfða sérstaklega til barna. Það er neytendastofa sem vekur athygli á þessu í fréttatilkynningu. Þar segir ennfremur: „Tilgangur bannsins er að fækka slysum af völdum kveikjara. Evrópsk vöruöryggisyfirvöld hafa lengi unnið að því að auka öryggi kveikjara og um leið öryggi neytenda. Talið er að á milli 1500- 1900 einstaklingar slasist og 30-40 einstaklingar láti lífið árlega í ríkjum evrópska efnahagssvæðisins af völdum fikts og leiks barna að kveikjurum. Í Bandaríkjunum, þar sem samskonar bann hefur verið í gildi síðan árið 1994, hafa brunum sem rekja má til kveikjara sem börn voru að fikta með fækkað um 60% eftir að löggjöf um barnalæsingar á kveikjurum tók gildi. Heimilt er að kveikjarar sem markaðssettir voru fyrir þann 11. mars 2007 séu áfram á markaði og aðgengilegir neytendum til 11. maí 2009. Þrátt fyrir að frestur sé til 11. maí á næsta ári er rétt að taka það fram að æskilegt er að vörur af þessu tagi hverfi af markaðinum sem allra fyrst. Neytendastofa mun eftir 11. maí 2009 hefja markaðseftirlit til að kanna hvort kveikjarar án barnalæsingar og kveikjarar með óhefðbundið útlit hafi verið fjarlægðir af markaðinum."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira