Einar Bárðar leggst í Víking í Reykjanesbæ 19. október 2008 09:58 Einar Bárðarson.
Einar Bárðarson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri hjá Víkingaheimum vegna uppsetningar Smithsonian sýningar og Íslendings sem opnar næsta sumar í Reykjanesbæ. Á sama tíma mun Einar einnig sinna verkefnum við uppbyggingu Hljómahallarinnar sem nú rís við hið fræga samkomuhús Stapan í Reykjanesbæ. Í tilkynningu segir að Einar hafi nýlega sest að í Reykjanesbæ en hann starfaði áður í London við útgáfu og umboðsstörf. „Það er svo margt spennandi í gangi hér. Mér finnst Árni Sigfússon og samstarfsfólk hans í bæjarstjórn vera að gera skemmtilega hluti hérna. Ég mun vinna þetta verkefni mjög náið með Steinþóri Jónssyni, Elisabetu Ward sýningastjóra og Gunnari Marel Eggertssyni skipstjóra og hlakka ég mjög mikið til samstarfsins við allt þetta góða fólk" sagði Einar við þetta tilefni. Þá segir að Víkingaheimar opni í maí næstkomandi og munu sjö til átta stöðugildi verða til við opnunina. Víkingaheimar eru að mestu í eigu Reykjanesbæjar „Víkingaheimar og Hljómahöllin eru hvorutveggja mikil og metnaðarfull verkefni sem sanna með hvaða festu og framsýni hlutirnir eru keyrði hérna í Reykjanesbæ," segir Einar. „Ég hef mikinn metnað fyrir báðum þessum verkefnum og vona að kostir mínir nýtist vel. Markmiðið er að byggja upp fjölsóttustu ferðamannastaði landsins og skapa þarna fjölda stöðugilda og gjaldeyri. Það er það sem er mest aðkallandi þessa daganna." HUNDRUÐ MILLJÓNA KRÓNA SÝNING FRÁ SMITHSONIAN Það er Steinþór Jónsson hótelstjóri í Keflavík sem er framkvæmdarstjóri Víkingaheima og hefur leitt verkefnið síðustu ár í samvinnu við eigendur og Lykilráðgjöf. „Við höfum verið með mjög öflugt teymi í þessu verkefni frá upphafi þar sem Gunnar Marel kemur að öllu sem tengist skipinu sjálfu en Elisabeth Ward sem tengist Smithsonian safninu í Washington en hún var einnig sýningarstjóri Víkingasýningarinnar í Bandaríkjunum."segir Steinþór. Hann segir að húsið sé því sem næst tilbúið en þar er um að ræða rúmlega þúsund fermetra glæsibyggingu hannaða af Guðmundi Jónssyni arkitekt og byggða af byggingarfyrirtækinu Spöng. „Aðkoma Einars Bárðarsonar að verkefninu nú er okkur mikils virði og spennandi fyrir mig að fá hann í liðið til okkar," segir Steinþór. HLJÓMAHÖLL VIÐ STAPANN Hljómahöllin er sögusýning um íslenska dægurtónlist, Rock and Roll Hall of Fame, sem mun opna í ágúst á næsta ári í Hljómahöllinni. Hljómahöllin er tónlistar- og ráðstefnuhús sem nú rís utan um Stapann í Reykjanesbæ. Rúnar Júlíusson mun starfa sem safnstjóri Hljómahallarinnar og sérstakur verndari og Jónatan Garðarsson sér um undirbúning og efnisöflun sýningarinnar. Keflavík hefur lengi verið kölluð vagga rokksins á Íslandi og því vel við hæfi að sögu rokks og dægurtónlistar verði gerð góð skil hér. HEIMAHÖFN ÍSLENDINGS Víkingaheimar opna í nýju glæsilegu húsi Öldunni sem nú er í byggingu við Fitjar í Reykjanesbæ. Aldan er hönnuð og teiknuð af Guðmundi Jónssyni arkitekt en húsið er byggt utan um víkingaskipið Íslending sem smíðað var seint á síðustu öld af Gunnari Marel Eggertssyni. Gunnar sigldi því til Bandaríkjanna í tilefni aldar afmælis landafundanna. Reykjanesbær og tengdir aðilar keyptu skipuð árið 2003 og var því sigld í heimahöfnina við Fitjar þar sem uppbygging utan um skipið hefur staðið um nokkurt skeið. Íslendingur er nákvæm eftirlíking Gaukstaðaskipsins, sem fannst og var grafið upp árið 1882 við Gauksstaði í Sandefjord í Noregi. Skipið hafði varðveitst mjög vel í jörðu en vísindamenn komust að því, að það hafi verið smíðað árið 870, fjórum árum áður en Ingólfur Arnarson settist að á Íslandi.
Mest lesið Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Lífið „Eins nakin og ég kemst upp með“ Tíska og hönnun Slíðruðu sverðin á árshátíð borgarstjórnar Lífið Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Tónlist „Besti tími lífs míns hingað til“ Lífið Tvö ár af ást hjá Charlie og Laufeyju Lífið Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni Lífið Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum Tíska og hönnun Diddy selur svörtu einkaþotuna Lífið „Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum“ Lífið Fleiri fréttir Innflytjendamálin eru fíllinn í stofunni Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Skóli við rætur Vatnajökuls Faðir Dilberts allur Tvö ár af ást hjá Charlie og Laufeyju Slíðruðu sverðin á árshátíð borgarstjórnar Diddy selur svörtu einkaþotuna Gummi Tóta og Guðbjörg eiga von á öðru barni Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni „Hvaða rugl er þetta?“ „Besti tími lífs míns hingað til“ Spá Ísrael sigri marga mánuði fram í tímann „Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum“ Fannar og Jói böðuðu hvor annan Fjölmenni í Tene-afmæli Gurrýjar en enga Sólrúnu Diego að sjá „Litlu kóngarnir“ sjaldan verið heitari Þessi nældu sér í verðlaun á Golden Globe „Á Íslandi eru konur hvattar til að dreyma og vera í forystu“ Stjörnulífið: Ár gellunnar Hús Björns og Hafdísar það dýrasta sem hefur verið selt Fresta tökum á Love Island All Stars Finnur fyrsti óperustjórinn Þegar miðborgin stóð í ljósum logum Sjá Jón Kára sem barn með óendanlega möguleika Krakkatía vikunnar: Borgarstjóri, Stubbarnir og handbolti Bob Weir látinn Stóru spurningunni um dularfullt slys enn ósvarað Minnast Magnúsar Eiríkssonar: „Góða ferð, elsku vinur“ Fréttatía vikunnar: Björk, EM í handbolta og Alvotech RÚV hættir við Söngvakeppnina Sjá meira