Borgarstjóri og dómsmálaráðherra hyggjast funda um löggæslumál 16. júlí 2008 14:25 Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hefur óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra vegna stöðu löggæslumála.
Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, og Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, munu funda í dómsmálaráðuneytinu næsta föstudag, um þörf fyrir aukna löggæslu í miðborginni um helgar. Í fréttatilkynningu frá borgarstjóra segir að fundurinn sé haldinn af frumkvæði hans í framhaldi af mikilli manneklu hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu undanfarnar tvær helgar. „Samkvæmt heimildum frá lögregluembættinu voru aðeins níu lögregluþjónar á vakt í miðborginni aðfaranótt 6. júlí sl. Tólf lögregluþjónar voru á vakt aðfaranótt 12. júlí og fjórtán aðfaranótt 13. júlí. Til að stuðla að auknu öryggi í miðborginni hafa borgaryfirvöld gripið til þess ráðs að fá svokallaða miðborgarþjóna til að standa vakt í miðborginni að næturlagi um helgar. Miðborgarþjónarnir eru sex saman á vakt frá klukkan tvö á nóttunni til átta á morgnana. Í byrjun var um að ræða þriggja vikna tilraunaverkefni. Nýlega samþykkti borgarráð að framlengja verkefnið til 15. september nk.," segir í tilkynningu frá borgarstjóra. Borgarstjóri segist hafa haldið reglubundna fundi með helstu embættismönnum borgarinnar sem tengjast miðborginni, fulltrúum veitingahúsaeigenda, lögreglu, íbúum og miðborgarþjónum undanfarna mánudagsmorgna. Þar sé farið yfir atburði yfir liðna helgi. Á fundunum hafi ítrekað verið vakin athygli á þörf fyrir aukna löggæslu í miðborginni. Í framhaldi af því hafi borgastjóri óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra um málið.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira