Ganglimir brugðust 8. júlí 2008 11:39
Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í mörg horn að líta í vikunni sem leið enda töluverður fjöldi fólks í bænum í tengslum við Goslokahátíð. Að sögn lögreglu fór hátíðin að mestu leiti vel fram. Eitthvað var um pústra en engar kærur liggja fyrir. Þá þurfti lögreglan að aðstoða nokkra gesti hátíðarinnar til síns heima þar sem ganglimir létu ekki að stjórn. Einn fékk að gista fangageymslur lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar en hann hafði verið ölvaður og með óspektir í Skvísusundi. Þrjú eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið. Að kvöldi 1. júlí sl. var tilkynnt um að þrír ungir drengir væru að gera sér það að leik að slá golfkúlur í klæðningu Íþróttahússins. Rætt var við drengina og foreldra þeirra og lofuðu þeir að gera þetta ekki aftur. Að kvöldi 3. júlí sl. var tilkynnt um skemmdir á vinnuvél sem stóð vestan við Týsheimilið en rúður í vélinni höfðu verið brotnar. Sást til barna við vélina sem voru að kasta í rúðurnar en hins vegar er ekki vitað um hvaða börn voru þarna að leik. Að morgni 5. júlí sl. var tilkynnt um rúðubrot í húsi slökkvistöðvarinnar og að sést hafi til manns sem braut rúðuna í reiðikast. Af umferðarmálum er það helst að frétta að einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur. Þá fengu fimm ökumenn sekt fyrir að hafa ekki öryggisbeltið spennt í akstri. Auk þess fékk einn sekt fyrir að vera með of marga farþega og einn aðili fékk sekt fyrir að fela manni akstur ökutækis án þess að sá hinn sami hefði ökuréttindi.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira