Daily Mail: Jón Ásgeir og vinir úti á lífinu 12. október 2008 11:52 Þessi mynd er í Daily Mail í dag og var tekin á 101 Hóteli aðfararnótt síðasta laugardags.
Breska blaðið The Daily Mail hefur haft blaðamenn á Íslandi undanfarna daga. Blaðið birtir grein í dag þar sem greint frá veru Jóns Ásgeirs og vina á 101 Hóteli á föstudagskvöldið. Meðal gesta við borð Jóns Ásgeirs voru eiginkona hans Ingibjörg Pálmadóttir, viðskiptafélagi hans Þorsteinn M. Jónsson, Ari Edwald, forstjóri 365, og Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri. Blaðamaðurinn Tom Harper greinir frá því að aðrir gestir staðarins hafi verið afar hneykslaðir á veru Jóns Ásgeirs á staðnum og þeirri staðreynd að hann og vinafólk hans keypti sér sautján þúsund króna vínflöskur til að svala þorstanum. "Þau hlæja og drekka flösku eftir flösku af dýru víni, án þess að hafa nokkrar áhyggjur af storminum í kringum þau," segir Harper í byrjun greinarinnar. Jafnframt vitnar hann til orða eins gests á staðnum sem segir að að þetta hafi verið eins og að vera staddur í helvíti og horfa upp á litlu djöflana njóta síðustu daga hins venjulega lífs á Íslandi. Harper nafngreinir nokkra úr félagsskap Jóns Ásgeirs við borðið á 101. Þar er Jón Ásgeir sjálfur kallaður „The Tycoon" eða „Auðjöfurinn", Þorsteinn M. Jónsson er kallaður „The Banking Boss" eða „Bankastjórinn", Ingibjörg Pálmadóttir er kölluð „The Socialite Hotelier" eða „Samkvæmisglaða hóteldrottningin", Ari Edwald er kallaður „The Media Mogul" eða „Fjölmiðlakóngurinn" og Ólafur F. Magnússon „The Former Mayor" eða „Borgarstjórinn fyrrverandi". Ólafur F. segir í samtali við Vísi að hann hafi hitt Ara Edwald fyrir tilviljun og sest niður hjá honum til að spjalla. „Við þekkjumst frá fornu fari úr Sjálfstæðisflokknum," segir Ólafur. Jón Ásgeir hefur ekki farið varhluta af þeim hamförum sem dunið hafa yfir íslendinga á unanförnum vikum. Stoðir, sem er að stærstum hluta í eigu eignarhaldsfélags þar sem hann á meirihlutann, missti kjölfestuhlut sinn í Glitni þegar hann var þjóðnýttur og nú er útlit fyrir að hlutur hans í Baugi Group gufi upp á sama hátt vegna milliríkjadeilu Breta og Íslendinga. Frétt Daily Mail má sjá hér
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Lífið samstarf Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Lífið samstarf Fleiri fréttir Vill vera sú fyrirmynd sem hún hefði þurft Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira