Vilja öll gögn um Icesave áður en afstaða er tekin til láns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 29. nóvember 2008 12:12
Ríkisstjórnin verður að leggja fram öll gögn og upplýsingar varðandi Icesave deiluna áður en Alþingi tekur afstöðu til fyrirgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þetta kemur fram í bréfi þriggja þingmanna Vinstri grænna til forsætisráðherra. Í bréfinu, sem sent var forsætisráðherra í gær, leggja þingmennirnir fram ellefu spurningar í þremur liðum. Vísað er meðal annars til fundar sem Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, átti með öðrum evrópskum fjármálaráðherrum í byrjun þessa mánaðar. Fundurinn þótti marka tímamót í Icesave deilunni en þá varð íslenskum stjórnvöldum tjáð að lokað yrði á allar lánalínur nema lausn fengist í deilunni. Óska þingmennirnir eftir því að fundagerð þessa fundar verði lögð fram sem og að upplýst verði hvaða aðgerðum Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópuríki hafi hótað að beita yrði ekki fundinn lausn á Icesave deilunni. Þá er óskað eftir upplýsingum hvort til standi að greiða allar innistæður í þýska dótturfélagi KB-banka eða einungis upp að 21 þúsund evru markinu. Vilja þingmennirnir vita á hvaða forsendum það verði gert, hvaða fordæmi það kann að skapa gagnvart öðrum ríkjum og hvort Þjóðverja muni lána Íslendingum fyrir greiðslunni. Er þess ennfremur krafist að að fjármálaráðherra gefi skýrslu fyrir utanríkimálanefnd um samskipti og samninga við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og við Evrópusambandið og þau lönd sem tengjast Icesave deilunni. Þingmennirnir vilja einnig að Alþingi fái fullnægjandi svör við lögfræðilegri gagnrýni vegna Icesave deilunnar og ennfremur hvort verðmat hafi farið fram á eignum Landsbankans í Bretlandi. Er þess krafist að upplýsingar og gögn um þessi mál liggi fyrir áður en Alþingi tekur afstöðu til fyrirgreðuslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ábyrgðar á Icesave reikningunum.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira