Innlent

Grímseyjarmál komið til saksóknara - Byrgismál á leiðinni

Brynjólfur Árnason, fyrrverandi sveitarstjóri í Grímseyjarhreppi.
Brynjólfur Árnason, fyrrverandi sveitarstjóri í Grímseyjarhreppi.

Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur lokið rannsókn á meintum brotum fyrrverandi sveitarstjóra Grímseyjarhrepps og sent það til saksóknara til ákvörðunar um saksókn. Þá er rannsókn á meintum efnahagsbrotum í Byrgismálinu svokallaða að ljúka og málið á leið til saksóknara.

Brynjólfur Árnason, fyrrverandi sveitarstjóri Grímseyjarhrepps, er grunaður um fjárdrátt í opinberu starfi. Grunur vaknaði um athæfið þegar Brynjólfur var dæmdur í héraðsdómi fyrir að hafa stolið nærri 13 þúsund lítrum af olíu til húshitunar í nóvember í fyrra.

Fljótlega eftir að farið var að skoða bókhald Grímseyjarhrepps vaknaði grunur um stórfelld fjársvik Brynjólfs. Honum var sagt upp störfum sem sveitarstjóra og málið í framhaldi kært til lögreglu. Að sögn Sveins Ingibergs Magnússonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá efnahagsbrotadeildinni, er rannsókn málsins lokið og það hefur verið sent saksóknara deilarinnar. Hann tekur væntanlega ákvörðun á næstu vikum um það hvort ákært verður í málinu.





Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins.MYND/Egill

Skýrslutökum í rannsókn á meintum efnahagsbrotum í rekstri Byrgisins er lokið en að sögn Sveins er verið að ganga frá gögnum í málinu. Búast má því að það verði sent saksóknara á næstunni.

Ráðist var í rannsókn málsins í kjölfar svartrar skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármál Byrgisins sem birt var í byrjun síðasta árs. Niðurstöður hennar benda til að ólöglega hafi verið staðið að rekstrinum og að fjármunir sem sannanlega hafa runnið til stjórnenda og starfsmanna Byrgisins séu langt umfram það sem fram komi í bókhaldi eða ársreikningum félagsins. Var um tugi milljóna króna að ræða.

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, hefur þegar hlotið þriggja ára fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum sem voru skjólstæðingar hans hjá Byrginu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×