Borguðu með perlum í stað punda sev skrifar 27. október 2008 15:50 Úr myndbandi Weird Girls. MYND/Hörður Ellert Ólafsson
Gengi íslensku krónunnar setti breitt og langt strik í reikninginn við tökur á nýju myndbandi við lag Emiliönu Torrini, „I've heard it all before". Gjörningahópurinn Weird Girls, undir forystu Kitty Von Sometime gerði myndbandið, en leikstjórinn, tökumaðurinn og klipparinn eru breskir. Tökur fóru fram í sundlauginni í Hveragerði á undurfögrum sólríkum októberdegi við upphaf kreppu, og þótti myndefnið lofa sérstaklega góðu. Þegar þríeykið breska sneri aftur til Englands með afraksturinn stóðu þau þó frammi fyrir vandamáli. Klipparinn ætlaði, eins og aðrir, að gefa vinnu sína við myndbandið, en eigendur klippisvítunnar þar sem vinna átti verkið voru ekki í neinu góðgerðarstarfi. Þeir kröfuðu klipparann um leigu fyrir aðstöðuna - í pundum. Kitty Von Sometime, hugmyndasmiðurinn á bak við Weird Girls verkefnið, segir góð ráð hafa verið dýr. „Pundið var orðið tvöfalt dýrara en þegar við sömdum um verð á svítunni, og þar að auki var vonlaust að millifæra til Bretlands," segir Kitty, sem hafði þungar áhyggjur af því að ekkert yrði af myndbandinu. Málin leystust þó farsællega, þegar klipparinn ákvað að leggja út fyrir svítunni, og þiggja greiðslu í forláta antík skartgripum. Kitty viðurkennir að þetta hafi verið nokkuð óvenjuleg ráðstöfun, en segir lítið annað hafa verið hægt að gera í stöðunni. Hún segir myndefnið ægifagurt, og reiknar þó fastlega með að myndbandið verði fyrirhafnarinnar virði.
Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Sjá meira