Fjármálaráðherra dró upp kolsvarta efnahagsmynd 13. nóvember 2008 14:31
Fulltrúar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna bjuggust ekki við að Árni Mathiesen fjármálaráðherra boðaði fagnaðarerindi af neinu tagi í ræðu sinni í dag en myndin sem hann dró upp af ástandinu var greinilega enn svartari en margir höfðu búist við að sjá. Þetta segir í tilkynningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga frá fjármálaráðstefnu þeirra í dag. Árni áætlaði að heildartekjur ríkissjóðs myndu dragast saman um fjórðung árið 2009, miðað við samsvarandi tölur í ár. Þar vegur þyngst að stofnar tekjuskatts og fjármagnstekna rýrna um meira en helming og allir skattstofnar dragast saman. Ráðherrann boðaði að reglubundin framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga myndu dragast saman um að minnsta kosti 10% og að „tímabundin framlög" ríkisins til Jöfnunarsjóðsins myndu ekki halda áfram. Í fjárlagavinnunni yrði miðað við að skera enn meira niður frekar en auka útgjöld. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og aðrir fundarmenn skildu orð ráðherrans á þann veg að ekki yrði framhald á 1,4 milljarða króna viðbótarframlagi ríkisins í Jöfnunarsjóðinn þó ekki væri sagt berum orðum. Á fundinum var lagt hart að ráðherranum að halda þessu viðbótarframlagi inni, enda væri um líf eða dauða að tefla fyrir sveitarfélög sem væru orðin „algjörlega háð framlaginu." Fjármálaráðherra kvaðst í lok fundar skynja þessi skýru skilaboð til sín og myndi fara vel yfir málið sínum ranni en lofaði engu um niðurstöðuna áður en hann hvarf á braut.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Sjá meira