Áfengissala 30 prósentum meiri í október í ár en í sama mánuði í fyrra 13. nóvember 2008 14:25 MYND/Hörður
Velta í dagvöruverslun dróst saman um 1,3 prósent á föstu verðlagi í október miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar kemur enn fremur fram að þegar horft er til breytilegs verðlags hafi veltan hins vegar aukist um nærri fjórðung miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta þýðir að fólk kaupir eilítið minna af mat í ár en greiðir mun meira fyrir hann en í fyrra. Bent er á að verð á mat hafi hækkað um fjórðung á einu ári, frá október í fyrra til október á þessu ári, þar af um fimm prósent á milli september og október í ár. Tölur Rannsóknarsetursins sýna enn fremur að áfengissala jókst um nærri 30 prósent í október miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og um 44,3 prósent á breytilegu verðlagi. Skýringin á þessari miklu veltuaukningu í áfengisverslun er hið mikla hamstur sem átti sér stað þann 31. október þegar tilkynnt hafði verið um hækkun á áfengi sem tæki gildi 1. nóvember. Einnig ber að hafa í huga að í október síðastliðnum voru fimm föstudagar en í fyrra voru þeir fjórir. Föstudagar eru að jafnaði söluháir dagar í áfengissölu. Þá dróst fatasala saman um 16,5 prósent á milli ára miðað við fast verðlag en skósala jókst um 2,6 prósent. Enn fremur minnkaði velta í húsgagnaverslun um nærri 45 prósent á föstu verðlagi miðað við október í fyrra og um 31,2 prósent á breytilegu verðlagi. Segir Rannsóknarsetrið þetta óvenjumikinn samdrátt en greinilegt sé að hrun bankanna í byrjun október hafi sett sitt mark á söu varanlegra neysluvara eins og húsgagna og annarra dýrra vörutegunda.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Sjá meira