Innlent

Átelja ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki hafnað eftirliti Breta

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Akureyri átelur harðlega að ríkisstjórn Íslands skuli ekki skilyrðislaust hafna fyrirhuguðu loftrýmiseftirliti Bretlands yfir Íslandi.

Í yfirlýsingu frá félaginu segir að slíkt loftrýmiseftirlit sé ekki nauðsynlegt í ljósi þess að engar hernaðarhættur ógna Íslandi sem og það sé algerlega óverjandi að í núverandi stöðu borgi íslenskir skattgreiðendur Bretum fyrir flug herflugvéla yfir Íslandi.

„Ríkisstjórn Bretlands hefur nú þegar stórskaðað íslenska hagsmuni með því að beita hryðjuverkalöggjöf gagnvart Íslendingum og krefjast svo að íslenskur almenningur taki á sér skuldarbyrðar langt umfram þær ábyrgðir sem kveðið er á um í evrópskri löggjöf. Það er svo ástæða til að árétta vegna orða utanríkisráðherra þess efnis að hann hafi ákveðið að "leggja málið í hendur" Bretum að það er ráðherrans að ákveða hvort hér sé loftrýmiseftirlit eða ekki," segir í yfirlýsingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×