Staðið við skuldbindingar í þróunarmálum 13. nóvember 2008 12:37 Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. ,,
Við stöndum við það sem við höfum tekið að okkur og það er kjarni málsins," segir Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, um fyrirhugaðar sparnaðaraðgerðir utanríkisráðuneytisins vegna yfirstandi efnahagsþrenginga. Af þeim ríflega 2,3 milljörðum sem utanríkisráðuneytið hyggst spara á næsta ári verður skorið langmest niður í þróunarmálum eða um 1666 milljónir. Fjárframlög til Þróunarsamvinnustofnunar dragast saman um 777 milljónir. Fallið verður frá 510 milljóna aukningu í framlögum til stofnunarinnar líkt og gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár. Gerðar verða breytingar á starfsemi sendiskrifstofa stofnunarinnar. ,,Álitshnekkir sem Ísland hefur orðið fyrir vegna ófaranna mun ekki aukast við þetta heldur þvert á móti og við munum standa við allt okkar," segir Sighvatur og bætir við að Íslandi eigi ekki kost á að efna til neinna umtalsverða nýrra skuldbindinga á næsta ári. Aðspurður hvort að þróunarmál séu gæluverkefni segir Sighvatur svo ekki vera og bendir á að þrátt fyrir þennan niðurskurð hafi orðið umtalsverð aukning í fjárframlögum til þróunarmála á undanförnum árum. Sighvatur tekur sem dæmi að framlög til Þróunarsamvinnustofnunar séu fjórfalt hærri en þegar hann hóf störf hjá stofnunni árið 2001. ,,Þó þetta sé mikill niðurskurður vinna Íslendingar engu að síður öflugt þróunarstarf," segir Sighvatur.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Sjá meira